Fischersund er þekkt fyrir að skapa sérstaka upplifun og skynjun með ilmum sínum. Gestir voru hvattir til þess að loka augunum, þefa af ilminum og hlusta á Lilju Birgisdóttur, stofnanda Fischersunds, lesa upp ljóð sem samið var sérstaklega fyrir ilminn.
Ljóðið hljóðar sem svo:
Ísskúlptúrar fljóta í söltu vatni. Fjarlægar drunur rjúfa þunga þögnina. Aldagamall jarðvegur grafinn undir ís, bíður. Blautir sokkar, nefrennsli, kaldur andardráttur. Auðmýkt frammi fyrir hvítum sjóndeildarhring. Útskorið landslag, steinefni afhjúpuð. Þungar gler plötur, hrynja.

„Ilmurinn er innblásinn af íslenskum jöklum sem eru rótgrónir í íslenskri náttúru en eiga nú undir högg að sækja vegna loftslagsbreytinga. Ilmurinn er tileinkaður þeirri einstöku lykt sem má einungis finna þegar undirliggjandi jarðvegur og berg sem hefur verið falið undir ísnum kemst í tæri við súrefni.
Þessi ilmur sem kemur í takmörkuðu upplagi er innblásinn af djúpstæðum breytingum náttúrunnar, loftslaginu og því viðkvæma jafnvægi sem við stöndum frammi fyrir þegar við lítum til framtíðar fyrir náttúruna okkar,“ segir í fréttatilkynningu.
„Við Íslendingar deilum sérstökum tengslum við náttúruna. Íslenskt veðurfar hefur sinn eigin persónuleika sem einkennist af ófyrirsjáanleika og stjórnleysi. Við lítum á náttúruna sem hluta af fjölskyldunni okkar, jafnvel sem part af okkur sjálfum. Það er ekki bara skylda okkar heldur er það okkur hjartans mál að vernda og varðveita jöklana, vatnsauðlindirnar og vistkerfið okkar í heild sinni,“ segir Lilja Birgisdóttir.
Bjarney Harðardóttir eigandi 66°Norður segir málefnið mikilvægt.
„Sem íslensk fyrirtæki eigum við það sameiginlegt að jöklarnir eru okkur hjartans mál. Það lá því beinast við að næsta skref í okkar samstarfi væri að vekja athygli á þeim og heiðra þetta náttúruundur í nýja Jöklalykt ilminum okkar.“
Hér má sjá myndir frá viðburðinum:













