Brassar búnir að finna nýjan landsliðsþjálfara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. janúar 2024 14:31 Dorival Júnior (til hægri) tekur við brasilíska karlalandsliðinu af Fernando Diniz (til vinstri). Dorival Júnior hefur verið ráðinn nýr þjálfari brasilíska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Fernando Diniz sem var rekinn á föstudaginn.
Tite hætti sem þjálfari Brasilíu eftir HM 2022 þar sem Brassar féllu úr leik fyrir Króötum í átta liða úrslitum. Ramon Menezes stýrði brasilíska liðinu fyrst í stað áður en Diniz var ráðinn. Brasilía vann hins vegar aðeins tvo af sex leikjum undir hans stjórn og hann var látinn taka pokann sinn í síðustu viku. Brasilíska knattspyrnusambandið vildi fá Carlo Ancelotti til að taka við landsliðinu en ekkert verður af því þar sem hann skrifaði undir nýjan samning við Real Madrid á dögunum. Dorival hættir hjá Sao Paulo til að taka við brasilíska landsliðinu. Undir hans stjórn varð Sao Paulo brasilískur bikarmeistari í fyrra. Þar áður stýrði Dorival Flamengo og gerði liðið að bikar- og Suður-Ameríkumeisturum 2022. Hinn 61 árs Dorival hefur einnig stýrt Atletico Mineiro, Athletico Paranaense, Internacional, Vasco da Gama, Fluminense, Snatos og Palmeiras auk annarra minni liða á þjálfaraferlinum. Dorival stýrir Brasilíu í fyrsta sinn í vináttulandsleikjum gegn Englandi og Spáni í mars. Fyrsti keppnisleikurinn er svo gegn Ekvador í undankeppni HM 2026 í september. Brassar eru í 6. sæti Suður-Ameríkuriðilsins.
Fótbolti Brasilía HM 2026 í fótbolta Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Jóhann Berg skoraði en Al Orubah úr leik Enn eitt flautumark Leverkusen og Dortmund steinlá Júlíus lagði upp og Fredrikstad nálgast Evrópusæti Lewandowski skoraði tvö og klikkaði á víti í stórsigri Barcelona Gabbia hetjan í borgarslagnum „Endum leikinn sem betra liðið“ „Mikilvægt að við þorum að vera við sjálfir“ Samantha: Mögulega besti leikur minn á Íslandi „Höfum bara aldrei verið jafn fegnir að fá hálfleik“ Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga Kristall áfram í stuði og lagði upp mark Hólmbert með tvö mörk í fyrstu tveimur leikjunum fyrir nýja liðið Lagði upp mark tveimur mínútum eftir að hann kom inn á Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi Sjá meira