Grótta náði í stig í Eyjum Smári Jökull Jónsson skrifar 7. febrúar 2024 20:10 Elmar Erlingsson var markahæstur hjá ÍBV í dag. Vísir/Anton Brink Grótta gerði góða ferð til Vestmannaeyja í dag því liðið gerði jafntefli við ÍBV í Olís-deild karla í handknattleik. Þá vann Stjarnan sigur á KA í Garðabæ.
Fyrir leikinn í kvöld var ÍBV í 3. sæti Olís-deildarinnar en liðið tapaði með tíu mörkum fyrir Haukum um helgina. Grótta var í 8. sæti og í baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Grótta komst í 6-1 í upphafi leiks áður en Eyjamönn rönkuðu við sér og náðu að minnka muninn í 8-7. Staðan í hálfleik var 19-18 Gróttu í vil sem hafði frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn. ÍBV náði frumkvæðinu í upphafi síðari hálfleiks en munurinn á liðunum varð aldrei meiri en tvö mörk. Í stöðunni 27-25 fyrir ÍBV náði Grótta hins vegar 5-1 kafla og komst í 30-28 með aðeins fimm mínútur eftr af leiknum. Eyjamenn jöfnuðu í 30-30 og í 31-31 þegar þrjár mínútur voru eftir. Hvorugu liði tókst að skora eftir það og urðu að sætta sig við skiptan hlut. Lokatölur 31-31. Elmar Erlingsson skoraði 6 mörk fyrir ÍBV og Dagur Arnarsson 5 og þá varði Pavel Miskovich 10 skot í markinu. Hjá Gróttu voru Ari Pétur Eiríksson, Ágúst Emil Grétarsson og Antoine Óskar Pantano markahæstir með 4 mörk og Einar Baldvin Baldvinsson varði 10 skot í markinu. Í Garðabæ tók Stjarnan á móti Gróttu. Stjarnan var með þrettán stig í 7. sæti fyrir leikinn en KA með tíu stig í 9. sæti. Stjarnan tók frumkvæðið í upphafi leiks og leiddi 18-14 í hálfleik. Í síðari hálfleiknum tókst gestunum að minnka muninn í eitt mark en þá juku Garðbæingar forskotið á nýjan leik. Þegar Pétur Árni Hauksson kom Stjörnunni í 31-28 með tæpar þrjár mínútur eftir var björninn unninn. Lokatölur 33-28 og Stjarnan lyftir sér þar með uppfyrir Hauka í töflunni. Pétur Árni Hauksson var markahæstur hjá Stjörnunni með 6 mörk og Adam Thorstensen varði 12 skot í markinu. Einar Rafn Eiðsson skoraði 8 mörk fyrir KA og Bruno Bernat varði 6 skot fyrir Norðanmenn.
Olís-deild karla ÍBV Grótta Stjarnan KA Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira