Valsmenn halda í við toppliðið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. febrúar 2024 21:00 Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði tíu mörk fyrir Val. Vísir/Pawel Valur vann sterkan þriggja marka sigur er liðið tók á móti Íslandsmeisturum ÍBV í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 33-30.
Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda og liðin skiptust á að hafa forystuna. Eyjamenn náðu þriggja marka forskoti þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður í stöðunni 9-12 og gestirnir héldu forystunni út hálfleikinn, staðan 15-17 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Það tók heimamenn í Val svo tíu mínútur að éta upp forskot ÍBV og staðan því orðin jöfn þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Valsmenn komu sér fljótlega í forystu eftir það og leiddu með tveimur mörkum þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Munurinn varð svo þrjú mörk þegar Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði beint úr innkasti þegar sex mínútur voru eftir, staðan 30-27. Gestunum frá Vestmannaeyjum tókst aldrei að brúa það bil og niðurstaðan varð marka sigur Vals, . Valsmenn eru nú aðeins einu stigi á eftir toppliði FH með 30 stig eftir 18 leiki, en FH-ingar hafa leikið einum leik minna. ÍBV situr hins vegar í fjórða sæti með 22 stig. Benedikt Gunnar Óskarsson var markahæsti maður vallarins með tíu mörk fyrir Valsmenn, en Arnór Viðarsson var atkvæðamestur í liði ÍBV með sjö mörk.
Olís-deild karla Valur ÍBV Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Sjá meira