„Það þýðir ekkert annað en banka upp á hjá erlendum stórfyrirtækjum“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 16. mars 2024 08:00 Áætlunin var unnin af stýrihóp skipuðum af menningar-og viðskiptaráðherra í maí 2023. Hópinn skipuðu Björgvin Ingi Ólafsson formaður, Lilja Dögg Jónsdóttir og Páll Ásgeir Guðmundsson. Með hópnum starfaði Óttar Kolbeinsson Proppé hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu Menningar- og viðskiptaráðuneytið Menningar- og viðskiptaráðuneytið kynnti á fimmtudag áætlun um íslenska máltækni sem undirstrikar mikilvægi þess að tryggja stafræna framtíð tungumálsins. Áætlunin, sem telur fram sjö afmarkaðar tillögur og kjarnaverkefni, byggir á fyrri máltækniáætlun ráðuneytisins.
Stýrihópur um gerð máltækniáætlunar stjórnvalda, sem ráðherra skipaði 15. maí 2023, stendur að baki tillögunum sem kynntar voru. „Með Máltækniáætlun 1 byggðum við upp innviðina, lögðum vegi og brýr fyrir tæknina sem Máltækniáætlun 2 keyrir á,“ er haft eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur menningar-og viðskiptaráðherra í tilkynningu frá ráðuneytinu. Máltækniáætlun undirstaða tæknilausna Á opnum kynningarfundi á fimmtudag lýsti Lilja mikilvægi þess að stjórnvöld hefðu fjárfest í þróun tæknilegra innviða með Máltækniáætlun 1. Sú fjárfesting hafi verið nauðsynlegur grundvöllur þeirrar þróunar í íslensku tæknisamfélagi sem á sér stað og væri undirstaða þeirra tæknilausna sem eru að koma fram á íslenskum markaði í dag og eru aðgengilegar á íslensku. kynnti í vikunni áætlun um íslenska máltækni sem undirstrikar mikilvægi þess að tryggja stafræna framtíð tungumálsins. Menningar- og viðskiptaráðuneytið „Þar má nefna lausnir á borð við Bara tala, smáforrit sem kennir erlendu starfsfólki á Íslandi að læra íslensku með áherslu á starfstengdan orðaforða. Annað dæmi er sjálfvirk þýðing og textun á sjónvarpsefni sem Miðeind er að ljúka við þróun á, en það verkefni hlaut styrk úr Markáætlun í tungu og tækni, samkeppnissjóði hjá Rannís. Bæði þessi verkefni byggja á innviðalausnum sem þróaðar voru undir síðustu máltækniáætlun,“ segir í tilkynningunni. Sendinefnd í Kísildalinn Sendinefnd um máltækni á vegum forseta Íslands heimsótti bandaríska tæknirisa vorið 2022, sem hluti af Máltækniáætlun 1. Í tilkynningu menningar- og viðskiptaráðuneytis segir að sú heimsókn hafi skilað gríðarlega miklu og í kjölfarið hafi byrjað samstarf milli íslenska máltæknifyrirtækisins Miðeindar og OpenAI við að þjálfa Chat GPT-4 líkanið sérstaklega í að skilja og tjá sig á íslensku.Tugir íslenskra fyrirtækja hafi nýtt sér afrakstur þessarar vinnu með afgerandi hætti. „Má sem dæmi nefna að íslenska tæknifyrirtækið Advania kynnti fyrir helgi Eya, gervigreindarlausn fyrir innri rekstur fyrirtækja, sem byggir á Chat GPT-4 og getur því skilið fyrirmæli og tjáð sig á íslensku. Einnig Ara, frá DataLab, lausn sem einnig byggir á Chat GPT-4 og talar því íslensku.“Menningar- og viðskiptaráðherra hefur boðað aðra vesturferð í vor til þess að festa íslenskuna í sessi og koma henni að í nýjum lausnum hjá fyrirtækjum á borð við Microsoft og Anthropic. „Það þýðir ekkert annað en banka upp á hjá erlendum stórfyrirtækjum og segja: „Við búum yfir heimsklassa tækni sem við erum búin að þróa og þið getið nýtt ykkur og um leið aukið samfélagslega ábyrgð ykkar við umheiminn, stuðlað að tungumálafjölbreytni í tækniheiminum og stutt við smærri tungumál,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Tillögurnar sjö sem vísað var í hér að ofan eru eftirfarandi: Kanna fýsileika þess að miðstöð máltækni og gervigreindar sé komið á fót í samstarfi við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið til að finna þeim heimilisfesti til framtíðar. 60 m.kr. varið árlega í hagnýtingarverkefni í máltækni. Stóraukin áhersla á kynningarstarf og ráðgjöf fyrir máltækni. 100 m.kr. varið árlega í áframhaldandi þróun kjarnaverkefna í máltækni. Nýtt viðhaldsfyrirkomulag fyrir máltækniinnviði sett á laggirnar. Stjórnvöld séu leiðandi í innleiðingu máltæknilausna. Úttekt gerð á CLARIN-samstarfinu.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tækni Gervigreind Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira