Vill herja á Trump vegna þungunarrofs Samúel Karl Ólason skrifar 11. apríl 2024 16:17 Joe Biden og starfsfólk framboðs hans sjá færi á Trump þegar kemur að deilum um rétt kvenna til þungunarrofs. AP Miklar deilur mynduðust á þingi Arizona í Bandaríkjunum í gær þegar Repúblikanar komu í veg fyrir umræðu um að fella úr gildi 160 ára gömul lög um bann við þungunarrofi sem voru nýverið endurvakin af hæstarétti ríkisins. „Skömm, Skömm!“ var kallað í þingsalnum þegar umræðan var stöðvuð.
Hæstiréttur Arizona endurlífguðu fyrr í vikunni lög frá 1864 sem leggja nærri því algert bann við þungunarrofi og gera það mögulega glæpsamlegt svo hægt er að dæma lækna í allt að fimm ára fangelsi fyrir að framkvæma þungunarrof. Einu undanþágurnar samkvæmt lögunum, sem samin voru þegar Abraham Lincoln var forseti Bandaríkjanna og konur höfðu ekki kosningarétt, eru í tilfellum þar sem þungunin ógnar lífi konu. Sjá einnig: Lífguðu við meira en 160 ára gamalt þungunarrofsbann Þingmenn Demókrataflokksins og minnst einn Repúblikani reyndu tvisvar að hefja umræðu um að fella lögin úr gildi en án árangurs. Demókratar kölluðu þá á Repúblikana að þeir ættu að skammast sín en þrír Repúblikanar hafa lýst því yfir að þeir séu mótfallnir lögunum. Ein þingkona Repúblikanaflokksins hélt því fram að ekki væri tilefni til að flýta umræðunni um lögin og sakaði Demókrata um að „öskra á okkur og grípa til öfgafullrar og uppreisnarlegrar hegðunar“ í þingsal. Þá sagði hún málefnið vera flókið og tilfinningaþrungið. Hennar skoðun væri að það að „fjarlægja heilbrigð börn úr heilbrigðum mæðrum“ væri ekki heilbrigðisþjónusta. „Ólétta er ekki veikindi. Henni ber að fagna. Þungunarrof bindur enda á líf,“ sagði Teresa Martinez. Þingkona Demókrataflokksins sagði ákvörðun hæstaréttar Arizona hafa verið öfgafulla og að verði lögin áfram í gildi sé ljóst að fólk muni deyja vegna þeirra. Þungunarrof í deiglunni vestanhafs Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi árið 2022 úr gildi stjórnarskrárvarinn rétt kvenna til þungunarrofs. Síðan þá hafa Repúblikanar á ríkisþingum víðsvegar um Bandaríkin, og þá sérstaklega í sunnanverðum Bandaríkjunum, hert lög um þungunarrof mjög. Í mörgum tilfellum hafa verið samþykkt lög sem gera þungunarrof ólöglegt eftir sex vikna meðgöngu. Margar konur vita ekki af því að þær séu óléttar á fyrstu sex vikunum. Í kjölfarið hefur umræðan um þungunarrof vestanhafs orðið sífellt harðskeyttari og umfangsmeiri í pólitíkinni. Þá hefur réttur kvenna til þungunarrofs verið skráður í stjórnarskrár nokkurra ríkja Bandaríkjanna, eins og Kaliforníu, Kansas, Kentucky, Michigan, Montana, Ohio og Vermont. Til stendur að reyna það sama í Arizona. Aðgerðasinnar segjast hafa safnað rúmlega hálfri milljón undirskrifta fólks sem vilja halda atkvæðagreiðslu um að bæta slíku ákvæði við stjórnarskrá Arizona. Það er mun meira en til þarf til að bæta slíkri spurningu við kjörseðla í ríkinu. „Donald Trump gerði þetta“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur lýst því yfir að hann eigi heiðurinn að því hafa fellt rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi, með því að skipa þrjá af níu dómurum Hæstaréttar Bandaríkjanna. Trump hefur sagt að að hæstiréttur Arizona hafi gengið of langt og kallað eftir því að þingmenn breyti lögunum. Joe Biden, forseti, ætlar að reyna að nýta sér umræðuna um þungunarrof í Bandaríkjunum fyrir kosningarnar í nóvember og herja á Trump. Framboð Bidens ætlar að vekja athygli á sögum kvenna sem takmarkað aðgengi að þungunarrofi hefur komið niður á, samkvæmt frétt Politico. Fyrr á þessu ári birti framboð Bidens auglýsingu konu frá Texas. Hún var ólétt en fóstur hennar greindist með þrístæðu 18, en þá greinast þrír litningar þar sem ættu að vera tveir af litningapari 18, og var fóstrinu ekki hugað líf. Hún fékk þrátt fyrir það ekki að fara í þungunarof í Texas þar sem dómurum í hæstarétti ríkisins fannst þungun hennar ekki ógna lífi hennar nóg. Texas er eitt af þeim ríkjum þar sem lög um þungunarrof voru hert verulega í kjölfar úrskurðar Hæstaréttar Bandaríkjanna frá 2022 þegar stjórnarskrárvarinn réttur kvenna til þungunarrofs var felldur úr gildi. Þá var konum í Texas ekki heimilt að gangast þungunarrof eftir að hjartsláttur fóstursins verður greinanlegur, sem gerist iðulega eftir um sex vikna meðgöngu. Fyrr í þessari viku birti framboð Bidens svo aðra auglýsingu þar sem saga annarrar konu frá Texas var sögð. Amanda Zurawski segist hafa nærri því dáið vegna reglna Texas-ríkis, eftir að henni var meinað að fara í þungunarrof eftir að hún missti fóstrið eftir átján vikna meðgöngu. Hún fékk ekki að fara í aðgerð til að fjarlægja fóstrið og fékk í kjölfarið sýkingu. Nokkrum dögum síðar endaði hún á gjörgæslu og lést hún næstum því vegna sýkingarinnar. Í auglýsingunni segir að sýkingin hafi mögulega valdið því að Zurawski geti ekki orðið ólétt aftur. Auglýsingin endar á orðunum: „Donald Trump gerði þetta“. Trump birti á dögunum ávarp á Truth Social, samfélagsmiðli sínum, þar sem hann laug því að allir lagafræðimenn, sama hvaða flokki þeir fylgdu, vildu losna við dómafordæmið sem tryggði rétt kvenna til þungunarrofs og stærði sig af því að hafa fellt Roe V. Wade, eins og dómafordæmið er kallað, úr gildi. Hann hélt því einnig fram að þegar kæmi að þungunarrofi væru Demókratar öfgamennirnir. Laug hann því að þeir vildu leyfa konum að fara í þungunarrof alveg fram að fæðingu og þeir vildu meira að segja leyfa fólki að taka nýfædd börn af lífi. „Það að gangast þungunarrof á síðustu mánuðum þungunar, og jafnvel aftökur eftir fæðingu, það er nákvæmlega það sem það er, barnið fæðist og barnið er tekið af lífi eftir fæðingu, er óásættanlegt og næstum allir eru sammála því," sagði Trump í áðurnefndu ávarpi. absolutely grotesque, ghoulish stuff from Trump pic.twitter.com/NXljz2eQq0— Aaron Rupar (@atrupar) April 8, 2024
Bandaríkin Þungunarrof Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Joe Biden Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Tengdar fréttir Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virðast hafa verulegar efasemdir um málflutning samtaka sem vilja að dómstóllinn felli úr gildi ákvarðanir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna um að heimila notkun mifepristone. 27. mars 2024 08:09 Fyrsti varaforsetinn til að heimsækja þungunarrofsþjónustu Kamala Harris varð í gær fyrsti varaforsetinn í sögu Bandaríkjanna til að heimsækja heilsugæslu þar sem boðið er upp á þungunarrof. Enginn forseti hefur heimsótt miðstöð þar sem boðið er upp á úrræðið. 15. mars 2024 09:20 Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. 20. febrúar 2024 09:03 Veruleg fjölgun þeirra sem þurfa að sækja þungunarrof í öðru ríki Konum sem ferðast milli ríkja í Bandaríkjunum til að gangast undir þungunarrof hefur fjölgað verulega frá því að Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. 7. desember 2023 07:32 Mest lesið Skýrt ákall um heilsdagsverkfall á kvennafrídegi í ár Innlent Gerðu árás á rússneska efnaverksmiðju í Bryansk Erlent Lýstu yfir hættustigi vegna flugvélar í vanda Innlent „Það getur einhver verið að tæla barnið þitt fyrir framan þig“ Innlent Kynfræðsla ekki endilega forgangsatriði í fermingarfræðslu Innlent „Alvarlegt áfall á Grundartanga” sem beri að bregðast við hratt Innlent Fjölgun á þeim sem lögregla fylgir úr landi Innlent Trump gæti veitt sjálfum sér tugi milljarða í bætur frá eigin stjórn Erlent Vísindamenn segja mikilvægt að vanda valið á þunglyndislyfjum Erlent „Þessi starfsemi er komin til að vera“ Innlent Fleiri fréttir Hegseth bannar nú samskipti við þingið Trump gæti veitt sjálfum sér tugi milljarða í bætur frá eigin stjórn Vísindamenn segja mikilvægt að vanda valið á þunglyndislyfjum Sextíu og þrír látnir eftir umferðarslys í Úganda Gerðu árás á rússneska efnaverksmiðju í Bryansk Óttast að senda hermenn til Gasa Rífa hluta Hvíta hússins fyrir veislusal Trumps Ólíklegt að Trump og Pútín muni funda í bráð Serbneskur stríðsglæpamaður farinn yfir móðuna miklu 21 árs fangelsi fyrir banatilræðið gegn Fico Gagnrýndur fyrir ummæli um ógn af hálfu innflytjenda Refsidómi Diddy verði áfrýjað Fyrsta konan til að verða forsætisráðherra Japans Selja neyðargetnaðarvörn sem lausasölulyf í fyrsta skipti Opnar á að útvista loftslagsmarkmiðum Evrópu enn frekar Neitar enn að hleypa nýrri þingkonu að Enginn arftaki í augsýn hjá Xi Hafna aftur tillögu Trumps Frekari uppljóstranir vekja reiði og áköll um viðbrögð Fá heimild til að skjóta niður dróna yfir herstöðvum Tuttugu ára stjórn sósíalista í Bólivíu á enda Trump sagður hafa þrýst á Selenskí að gefa eftir land Segir vopnahlé enn í gildi á Gasa Komust á brott með átta ómetanlega skartgripi Trump birti gervigreindarmyndband: Með krúnu á höfði að henda hægðum á mótmælendur Tveggja barna foreldrar verða undanþegnir tekjuskatti Louvre-safni lokað vegna ráns Sagður bjóða frið í skiptum fyrir Donetsk Segja Hamas skipuleggja árás gegn almenningi á Gasa Gríðarlegur fjöldi á No Kings mótmælunum Sjá meira
Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virðast hafa verulegar efasemdir um málflutning samtaka sem vilja að dómstóllinn felli úr gildi ákvarðanir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna um að heimila notkun mifepristone. 27. mars 2024 08:09
Fyrsti varaforsetinn til að heimsækja þungunarrofsþjónustu Kamala Harris varð í gær fyrsti varaforsetinn í sögu Bandaríkjanna til að heimsækja heilsugæslu þar sem boðið er upp á þungunarrof. Enginn forseti hefur heimsótt miðstöð þar sem boðið er upp á úrræðið. 15. mars 2024 09:20
Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. 20. febrúar 2024 09:03
Veruleg fjölgun þeirra sem þurfa að sækja þungunarrof í öðru ríki Konum sem ferðast milli ríkja í Bandaríkjunum til að gangast undir þungunarrof hefur fjölgað verulega frá því að Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. 7. desember 2023 07:32