Pecker greindi meðal annars frá fundi sem hann átti með Trump og þáverandi lögmanni hans Michael D. Cohen, þar sem mennirnir ræddu hvað hann gæti gert til að styðja við kosningabaráttu Trump.
„Ég myndi verða augu þín og eyru,“ sagðist Pecker hafa sagt við forsetann fyrrverandi og þáverandi og núverandi forsetaframbjóðanda. Þá hafi hann útskýrt fyrir Trump og Cohen „fanga og drepa“ (e. catch and kill) aðferðafræði blaðsins, þar sem blaðið keypti réttinn að fréttum en birti þær aldrei.
Þetta er gula pressan sögð hafa stundað fyrir vildarvini.
Saksóknarar segja vitnisburð Pecker til marks um að ráðabruggi þríeykisins hafi ekki aðeins verið ætlað að vernda mannorð Trump heldur einnig kosningabaráttu hans. Segja þeir að tvær fréttir um Trump hafi verið þaggaðar niður í kjölfarið.
Þá hafi Cohen einnig mútað klámstjörnu fyrir að þegja um framhjáhald Trump, sem hann hefur þvertekið fyrir að hafi átt sér stað.
Saksóknarar biðluðu til dómarans í gær um að grípa til aðgerða vegna brota Trump á fyrirmælum hans um að tjá sig ekki um réttarhöldin í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þegar aðal lögmaður Trump, Todd Blanche, sagði að forsetinn væri að gera sitt besta til að fara að fyrirmælunum var augljóst að dómarinn átti afar erfitt með að trúa því. Sagði hann Blanche smám saman að glata öllum trúðverðugleika.