David Pecker, fyrrverandi útgefandi slúðurritsins National Enquirer, bar vitni í sakamálinu um að hann hefði gert samkomulag við Trump og lögmann hans um að blaðið kæfði neikvæðar sögur um hann í fæðingu í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. Það gerði það með því að greiða fyrir réttinn á sögum kvenna sem sögðust hafa haldið við Trump til þess eins að koma í veg fyrir að þær yrðu birtar opinberlega.
Trump er ákærður fyrir skjalafals til þess að hylma yfir þagnargreiðslur til fyrrverandi klámstjörnu sem sagðist hafa stundað kynlíf með honum á sínum tíma skömmu fyrir kosningarnar fyrir átta árum.
Sama dag og Pecker bar vitni barst staðardagblaði einu tölvupóstur frá manni sem kallaði sig „Jamal“ sem hélt því fram að hann hefði bundið konuna sína í kjallaranum og drepið elskhuga hennar. Sendandinn gaf upp heimilisfang Pecker í Greenwich í Connecticut.
„Ég klúðraði rækilega. Geri það, hjálpið mér,“ sagði í töluvpóstinum, að sögn Reuters-fréttastofunnar.
Lögreglan í Greenwich var þegar meðvituð um hvar Pecker byggi þegar henni barst ábending um póstinn vegna þess að hann bar þá vitni í dómsmálinu sem vakti heimsathygli. Eftirgrennslan leiddi í ljós að ekkert var hæft í tölvupóstinum. Líklegt væri að hann hafi verið tilraun til þess að sig vopnuðum lögreglumönnum á Pecker.
Dæmi um að fórnarlömb gabbs hafi verið skotin til bana
Falskar tilkynningar sem er ætlað að kalla á viðbrögð vopnaðra lögreglumanna með mögulega hættulegum afleiðingum hafa verið nefndar „swatting“ í Bandaríkjunum en það er vísun til sérsveitar lögreglunnar. Dæmi eru um að lögreglumenn hafi skotið fórnarlömb slíkra gabbtilkynninga til bana.
Pecker virðist ekki hafa verið heima þegar tilkynningin barst en ónefndur íbúi hússins var það samkvæmt atvikaskráningu lögreglunnar. Ekki var hægt að rekja slóð þess sem sendi tölvupóstinn.
Trump hefur ítrekað vegið að dómaranum, dóttur hans, saksóknurum og vitnum í sakamálinu á hendur honum þrátt fyrir að hann megi ekki tjá sig opinberlega á meðan réttarhöldin standa yfir. Dómarinn hefur ítrekað ávítt Trump fyrir að brjóta þau fyrirmæli. Í gær varaði dómarinn Trump við því að honum gæti verið varpað í fangelsi ef hann héldi áfram að vanvirða dóminn.