Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. júní 2024 08:01 Sóknaraðilinn bar fyrir sig afrit af reikningum vegna sambærilegra verka og yfirlýsingu matsmanns, sem sagði 760 þúsund krónur hæfilegt verð á slíku verki. Getty Ófaglærðum verktaka sem rukkaði viðskiptavin sinn um þrjár milljónir fyrir flísalögn hefur verið gert að gjörlækka greiðslukröfu sína til viðskiptavinarins, niður í 760 þúsund krónur.
Í úrskurði kærunefndar vöru- og þjónustukaupa kemur fram að fulltrúi á vegum viðskiptavinarins hafi óskað eftir þjónustu ófaglærðra starfsmanna varnaraðila við vinnu við lagningu flísa í baðherbergi og anddyri. Verktakinn hafi ekki viljað gera tilboð í verkið en lofað að tryggja sanngjarna og eðlilega verðlagningu á verkinu. Við verklok hafi hann aftur á móti send viðskiptavininum reikning upp á rúmlega þrjár milljónir. Sóknaraðilinn hafi gert athugasemdir við verðið og verktakinn sent leiðréttan reikning upp á 2,6 milljónir í kjölfarið. Þrátt fyrir það taldi viðskiptavinurinn greiðslukröfuna hærri en eðlilegt geti talist miðað við umfang verksins. Hann krafðist þess að verðið yrði lækkað niður í 760 krónur, og studdist við reikninga frá verktökum vegna sambærilegra verka og skriflega yfirlýsingu matsmanns. Sér til varnar vísaði verktakinn til þess að viðskiptavinurinn hefði, meðan verki stóð, óskað eftir því að verkinu yrði flýtt og í kjölfarið hafi verið fenginn auka starfsmaður frá varnaraðila í verkið og yfirvinna unnin. Varnaraðili hefði þó tekið út yfirvinnutaxtann og hluta af skráðum yfirvinnutímum í kjölfar andmæla sóknaraðila. Þá benti varnaraðili á að verkið hafi verið vandasamt og unnist hægt vegna ástæðna sem varða efni og gerð flísanna auk þess sem veggir hafi verið skakkir og ójafnir. Úrskurðarnefndin mat það svo að þær upplýsingar sem sóknaraðilinn aflaði um kostnað við flísalagnir í öðrum verkum auk yfirlýsingar matsmannsins, sem hefur lokið matstækni- og húsasmíðameistaranámi, væri fullnægjandi sönnun um þau atriði sem deilt var um. Í yfirlýsingunni kom fram að eðlilegt verð á hvern fermetra sé 19.000 krónur eða alls 760.000 krónur fyrir verkið. Nefndin féllst á það og úrskurðaði að verktakanum beri að lækka greiðslukröfu sína um rúmlega 1,8 milljón, úr 2,6 milljón krónum í 760 þúsund krónur.
Neytendur Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira