Fangaskiptin í gær eru þau umfangsmestu á milli Rússlands og vestrænna ríkja frá lokum kalda stríðsins. Sextán fangar í rússneskum fangelsum fengu þá frelsi í skiptum fyrir átta Rússa sem sátu í fangelsum í Bandaríkjunum og Evrópu. Skiptin fóru fram í Tyrklandi en þarlend stjórnvöld eru sögð hafa átt milligöngu um þau.
Á meðal þeirra sem var sleppt voru Evan Gershkovich, blaðamaður Wall Street Journal, sem var handtekinn í fyrra og síðar dæmdur fyrir njósnir í Rússlandi. Hann lenti ásamt Paul Whelan, fyrrverandi sjóliða sem hafði verið í haldi frá 2018, og Alsu Kurmashevu, rússneskum-bandarískum blaðamanni, á Andrews-herflugvellinum í Maryland í Bandaríkjunum í gærkvöldi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Kamala Harris, varaforseti, tóku á móti þremenningunum ásamt fjölskyldum þeirra á flugvellinum.
Fagnaðarfundir urðu á flugbrautinni. Þremenningarnir tóku myndir með fjölskyldu og vinum og föðmuðu Biden og Harris, að sögn AP-fréttastofunnar. Til stóð að færa þau til læknisskoðunar í kjölfarið, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Hélt að hann dæi í fangelsi
Á meðal annarra sem hlutu frelsi sitt í gær var Vladímír Kara-Murza, rússneskur andófsmaður sem afplánaði tuttugu og fimm ára fangelsisdóm fyrir meint landráð í Rússland. Í myndbandi sem Biden birti á samfélagsmiðlum af því þegar hann hringdi, umkringdur fjölskyldunum, í frelsuðu fangana þegar þeir voru á leið í flugvél heim heyrist Kara-Murza segja að engin orð fengju reynslu hans lýst.
„Ég var viss um að ég ætti eftir að deyja í fangelsi því ég trúi ekki því sem er að gerast. Ég held að ég sé ennþá sofandi í fangaklefanum mínum í Omsk í staðinn fyrir að heyra röddina í ykkur,“ sagði Kara-Murza og þakkaði Biden fyrir að bjarga lífum fanganna sem var sleppt.
„Við ætlum að hitta ykkur á Andrews [flugvellinum]. Ekki láta eins og þú þekkir okkur ekki,“ sagði Biden í léttum dúr.
Every parent, child, spouse, and loved one who joined me in the Oval Office today has been praying for this day for a long time.
— President Biden (@POTUS) August 2, 2024
In just a few short hours when our fellow Americans return home, those prayers will be answered. pic.twitter.com/2xglu30HE9
Ekki voru allir eins heppnir. Jake Sullivan, þjóðaröryggisráðgjafi Biden, staðfesti í gær að viðræður hefðu verið um að fá Alexei Navalní, einn helsta leiðtoga rússnesku stjórnarandstöðunnar, lausan í fangaskiptunum áður en hann lést við grunsamlegar aðstæður í rússnesku fangelsi í febrúar.
Júlía Navalnaja, ekkja Alexei, fagnaði engu að síður fangaskiptunum og sagði þau mikið gleðiefni.

Lögðu allt kapp á að fá morðingja frá Þýskalandi
Á meðan vestræn ríki fengu blaðamenn og andófsfólk frelsað í fangaskiptunum lögðu rússnesk stjórnvöld sérstaka áherslu á að fá Vadím Krasikov, sem myrti téténskan uppreisnarmann í almenningsgarði í Berlín um hábjartan dag, lausan. Vladímír Pútín forseti eru sagður hafa beitt sér persónulega fyrir hönd Krasikov sem er talinn hafa framið morðið að skipan rússnesku leyniþjónustunnar.
Pútín tók á móti rússnesku föngunum átta á Vnukovo-flugvellinum í gær. Faðmaði hann fólkið að sér og hét því að sæma það allt heiðursorðum í framhaldinu.
Aðrir sem Rússar fengu til baka voru Roman Seleznev sem sat í fangelsi fyrir tölvuárásir á bandaríska banka, hjón sem voru sökuð um njósnir í Slóveníu og rússneskur leyniþjónustumaður sem lést vera brasilískur fræðimaður í Tromsö í Noregi.

Undirstriki mikilvægi bandamanna og vina
Biden lofaði þátt þýskra og slóvenskra stjórnvalda í að koma fangaskiptunum á koppinn. Það hafi verið diplómatískt þrekvirki að tryggja lausn fanganna. Sjálfur hafði hann sett fangaskiptin efst á lista þess sem hann vildi áorka í utanríkismálum áður en hann lætur af embætti í janúar, að sögn AP-fréttastofunnar.
„Dagurinn í dag er áhrifamikið dæmi um hvers vegna það er lífsnauðsynlegt að eiga vini í þessum heimi,“ sagði Bandaríkjaforseti.
Þó að stjórnvöld í Berlín hafi þurft að kyngja því að sleppa dæmdum launmorðingja eru nokkrir þeirra sem hlutu frelsi sitt í gær þýskir ríkisborgarar eða fólk með tvöfalt þýskt-rússneskt ríkisfang.
Fangaskipti sem þessi eru ekki óumdeild. Gagnrýnendur segja þau gefa ríkjum eins og Rússlandi frekari hvata til þess að taka vestræna borgara í gíslingu og nota sem skiptimynt til að fá útsendara sína lausa. Stjórn Biden hefur á móti vísað til þess að Bandaríkjamönnum sem eru fangelsaðir á ólögmætan hátt hafi fækkað á sama tíma og samið hefur verið um lausn fleiri en sjötíu Bandaríkjamanna undanfarin ár.
„Samningum sem þessum fylgja erfiðar ákvarðanir. Það er ekkert sem er mér mikilvægara en að verja Bandaríkjamann heima og erlendis,“ sagði Biden.
Ekki eru heldur allir lausir allra mála þótt þeir sleppi úr rússneskum fangelsum. Í síðustu stóru fangaskiptum Rússlands og vestrænna ríkja árið 2010 var rússneski gagnnjósnarinn Sergei Skrípal. Útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar reyndu að ráða hann af dögum með taugaeitri á Englandi árið 2018.