Þannig mun Biden mögulega sleppa við réttarhöld í málinu, sem eiga að fara fram í Los Angeles, en dómarinn Mark Scarsi, sem skipaður var í embætti af Donald Trump, þarf að samþykkja breytinguna.
CNN hefur eftir Abbe Lowell, lögmanni Bidens, að mögulega gæti málaferlunum ljúkið í dag.
Saksóknarar ætla að mótmæla breytingunni og kvörtuðu yfir því að hafa heyrt fyrst af þessu í dómsal í dag.
Biden er sakaður um að hafa ekki greitt skatta frá 2016 til 2019, þegar hann átti í miklum vandræðum með áfengi og fíkniefni. Saksóknarar segja hann ekki hafa greitt 1,4 milljónir dala í skatta á þessum tíma og þess í stað hafi hann varið fjármunum sínum í fíkniefni, vændiskonur og dýr hótelherbergi, svo eitthvað sé nefnt.
Sjá einnig: Sagður hafa eytt fúlgum fjár í vændiskonur og lúxuslíf
Hann greiddi á endanum um tvær milljónir dala til skattsins, eftir að hann varð edrú en dómarinn neitaði lögmönnum hans að segja kviðdómendum í málinu frá því. Dómarinn bannaði lögmönnunum einnig að ræða þau áföll sem Hunter Biden segir að hafi leitt til neyslu hans.
Fyrr á þessu ári var Biden sakfelldur fyrir skotvopnalagabrot í Delaware fyrir að hafa logið um fíkniefnaneyslu sína á eyðublaði þegar hann keypti sér skammbyssu árið 2018. Dómsuppkvaðning í því máli fer fram í desember en Biden stendur frammi fyrir allt að 25 ára fangelsi. Líklegt þykir þó að hann muni ekki fá svo mikinn dóm eða jafnvel sleppa alfarið við fangelsisvist.