Skoðun

Sam­rýmist það sam­fé­lags­legri á­byrgð ef fyrir­tæki þitt er aðili að Við­skipta­ráði?

Andri Snær Magnason skrifar

Ímyndum okkur að vírus breiddist yfir jörðina og allir veðurfræðingar, jöklafræðingar, sjávarlíffræðingar ásamt gestum á COP ráðstefnum vöknuðu einn daginn og gætu bara sagt: EBITA EBITA! EBITA. Alveg sama hver spurningin væri, þá væri svarið bara EBITA! Öllum væri ljóst að þeir væru fallnir fyrir einhverjum Zombí-vírus. Þá þyrfti annað fólk að stíga inn, bara þú og afi þinn, allir sem einn, lesa gögnin, reyna að skilja þau, setja í samhengi við framtíð barna okkar og jarðarinnar og taka ábyrgð. 

Staðan er nefnilega ekki góð, sbr. nýlegar fréttir af bláa blettinum undan Grænlandi, Amazon skógarnir brenna sem aldrei fyrr og flóð sem eiga að koma á þúsund ára fresti koma á tíu ára fresti.

Nú hefur Viðskiptaráð komist að þeirri niðurstöðu að langflestar loftslagsaðgerðir Ríkisstjórnar Íslands hafi „neikvæð efnahagsleg áhrif“. Ég held að öllum sé ljóst að breytingarnar sem þarf að gera næstu 30 árin fela í sér mikið rask á mörgum atvinnugreinum. Það er óhjákvæmlegt, ekki síst þegar atvinnugreinin var vitlaust hönnuð í upphafi. Hið opinbera þarf vissulega aðhald og stundum eru settar reglur sem hafa öfug áhrif, stundum eru sett markmið sem eru óraunhæf eða loftkennd og það er hárrétt að vitlausar aðgerðir gætu valdið kollsteypu.

En þegar excel-skjal Viðskiptaráðs er skoðað, þá er viðmiðið þeirra mjög einfalt. Ef hið opinbera setur lög, stuðlar að verkefnum eða fjárfestir í þeim þá fær verkefnið falleinkun „Endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisins“. Falleinkun. „Vernd og endurheimt birkiskóga á þjóðlendum?“ Falleinkun. Reiðhjólastígar fá mínus stig. Krafa um förgun gróðurhúsalofttegunda við jarðvarmavirkjanir eins og gert er í Hellisheiðarvirkjun. Falleinkunn. Áætlun um útfösun F-gasa. Falleinkun. Hleðslustöðvar í höfnum landsins? Falleinkun.

Í Viðskiptaráði situr ungt fólk í einhverri þægilegustu innivinnu í sögu mannkyns. Ef samtökin eiga að taka sig alvarlega verða þau sjálf að koma fram með plan sem samrýmist loftslagsáherslum heimsins. Það er ekki hægt að þykjast vera geimvera sem stendur utan við málefnið og segir bara EBITA EBITA. Ef ekki er hægt að fella hugmyndafræði Viðskiptaráðs að framtíð lífs á jörðinni, hvort á að víkja?

Viðskiptaráð hefur á síðustu árum birst sem furðusamtök, metnaðarleysið í þessum málaflokki er óábyrgt og nánast glæpsamlegt. Það er tímabært að taka bara skýrt fram: Eins og stendur þá er ekki samfélagslega ábyrgt af fyrirtæki í nútíma samfélagi að vera í Viðskiptaráði. Er þitt fyrirtæki þar? Þinn vinnustaður? Þá er fyrirtæki þitt að styðja við leti og metnaðarleysi í loftslagsmálum. Lestu excel-skjal Viðskiptaráðs. Lestu skýrslur Sameinuðu Þjóðanna. Reiknaðu út hvenær börnin þín fara á eftirlaun og berðu saman við spár vísindamanna. Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt sem getur bara sagt EBITA.

Hlekkur í viðskiptaráð er hér og þar má sjá excel-skjalið.

Höfundur er rithöfundur.




Skoðun

Sjá meira


×