Innlent

Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar of­beldi

Árni Sæberg skrifar
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður gætir hagsmuna kvenanna.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður gætir hagsmuna kvenanna.

Fimm konur sem starfa eða starfað hafa hjá Icelandair segjast hafa verið beittar ofbeldi af hálfu samstarfsmanns þeirra hjá félaginu. Ein þeirra hefur lagt fram kæru á hendur manninum, Sóloni Guðmundssyni, fyrir nauðgun.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Vilhjálmi Vilhjálmssyni lögmanni, sem gætir hagsmuna kvennanna. Í yfirlýsingunni segir að ofbeldið, sem konurnar lýsa, hafi ýmist verið andlegt eða líkamlegt, eða hvoru tveggja og megi meðal annars heimfæra undir ákvæði almennra hegningarlaga um nauðgun. Í yfirlýsingunni er Sólon ekki nafngreindur heldur er vísað til hans sem samstarfsmanns kvennanna.

Þær hafi allar komið upplýsingum um brotin á framfæri við Icelandair.

Hafi nauðgað konu í júlí

Ein kvennanna hafi lagt fram kæru á hendur Sóloni fyrir nauðgun, sem eigi að hafa verið framin í lok júlí þessa árs.

Í beinu framhaldi hafi brotaþoli leitað til sálfræðings, sem hafi sent hana á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Um miðjan ágúst hafi brotaþoli upplýst Icelandair um hið meinta brot. Stuttu síðar hafi hún lagt fram kæru hjá lögreglu.

Fjölskyldan heimtar rannsókn

Talsvert hefur verið fjallað um mál Sólons undanfarna daga en hann svipti sig lífi 25. ágúst síðastliðinn. Nokkru áður hafði hann að sögn fjölskyldu hans verið neyddur til að segja upp störfum sem flugmaður hjá Icelandair.

Fjölskyldan hefur farið fram á að andlát Sólons verði rannsakað.

Hafa ekki áhuga á að vera hluti af umræðunni

Í yfirlýsingu kvennanna segir að engin þeirra hafi áhuga á að vera hluti af opinberri umræðu um málið. 

„Þvert á móti þá hefur fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga verið þeim þungbær. Að gefnu tilefni vilja þær hins vegar koma ofangreindu á framfæri.“


Tengdar fréttir

Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans

Fjölskylda flugmanns hjá Icelandair hefur lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans verði rannsakað. Flugmaðurinn féll fyrir eigin hendi eftir að mál tengd honum voru tekin fyrir innan fyrirtækisins. Fjölskylda hans telur mörgum spurningum enn ósvarað í málinu. Miklar brotalamir hafi verið á málsmeðferð innan Icelandair.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×