Favre opinberar baráttu við Parkinson's: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. september 2024 07:02 Brett Favre. NFL-goðsögnin Brett Favre greindi frá því í gærkvöld að hann hefði greinst með Parkinson's sjúkdóminn er hann ávarpaði velferðarnefnd á vegum Bandaríkjaþings. Favre hefur áður sagst hafa hlotið þúsundi heilahristinga á ferli sínum í NFL-deildinni.
Favre ávarpaði nefndina í gær sem var að taka fyrir TANF-aðstoð, tímabundna aðstoð fyrir fjölsyldur í neyð. Favre er sakaður um að hafa nýtt fé sem átti að fara til slíkra fjölskyldna í eigin þágu og var vegna þess fyrir nefndinni. Hann er sakaður um að hafa hlotið 1,1 milljón Bandaríkjadala í gegnum Mississippi-fylki en hann greiddi 500 þúsund til baka í maí 2020 og 600 þúsund til viðbótar í október 2021. Favre hefur ekki verið ákærður vegna málsins en fylkið er sagt sækjast eftir vaxtagreiðslum frá fyrrum fótboltastjörnunni. Stór skandall í Mississippi Málið sjálft er töluvert stærra og snertir fleiri en Favre. 47 vel tengdir einstaklingar eru sagðir hafa svikið út 77 milljónir dala sem áttu að fara til bágstaddra í Mississippi, sem er meðal fátækari fylkja Bandaríkjanna. Um átta milljónir dala fóru alls til Favre í gegnum verkefnið sem fóru meðal annars í byggingu blakvallar í Mississippi háskóla og til lyfjafyrirtækisins Prevacus, sem Favre átti hlut í. Prevacus er nú farið á hausinn og hefur læknir sem starfaði hjá fyrirtækinu játað því að hafa dregið að sér milljónir frá Prevacus. Því miður glataði ég einnig fjárfestingu minni í fyrirtæki sem ég trúði að væri að þróa byltingarkennd heilahristingslyf sem ég hélt að myndi hjálpa öðrum, sagði Favre fyrir nefndinni í gær. Eins og ég er viss um að þú munt skilja, á meðan það er of seint fyrir mig, þar sem ég hef nýlega greinst með Parkinson's, er þetta samt sem áður málstaður sem stendur mér nærri. Nýlega játaði læknir sem rak fyrirtækið að hafa dregið að sér TANF peninga til eigin nota, Meðal þeirra betri í sögunni Favre sagði í viðtali árið 2022 að hann hafi hlotið „þúsundir heilahristinga“ á 20 ára ferli sínum sem leikstjórnandi í NFL-deildinni. Lengst af lék Favre með Green Bay Packers og er talinn á meðal betri leikstjórnanda í sögu deildarinnar. Hann er í frægðarhöll NFL-deildarinnar og var valinn bestur í deildinni þrisvar, árin 1995 til 1997. Hans eina Ofurskál vannst árið 1996. Geta heilahristingar valdið Parkinson's? Parkinson er taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á þær taugafrumur í heilanum sem stjórna hreyfingu. Einkenni sjúkdómsins byrja hægt en ágerast smám saman eftir því sem tíminn líður Heilahristingar eru væg tegund heilaskaða sem geta aukið hættuna á því að fá Parkinsonsjúkdóminn, auk heilabilunar, skapvandamála og kvíðaraskana. Samkvæmt rannsókn frá 2020 getur stakur heilahristingur aukið líkur á því að greinast með Parkinson's um 57 prósent og elliglöp um 72 prósent. Ítrekaðir heilahristingar auki líkurnar töluvert á því að greinast með báða sjúkdóma. Þó eru rannsóknir á þessu sviði af skornum skammti. Mikið verið rætt um CTE Umræða um áhrif ítrekaðra höfuðhögga í íþróttum hefur færst í aukana undanfarin ár. Nígerísk-bandaríski læknirinn Bennet Omalu setti hugtakið CTE (chronic traumatic encephalopathy) fram í grein árið 2005 eftir að hafa rannsakað fyrrum NFL-leikmanninn Mike Webster, sem lést árið 2002 eftir að hafa hagað sér óvenjulega um nokkurt skeið áður en hann svipti sig lífi. Fjölmargir leikmenn í NFL hafa sýnt einkenni CTE eftir að ferli þeirra lauk, sem hvað helst sýnir sig í snemmbúnum vitglöpum, ofbeldishneigðri hegðun og þunglyndi.
NFL Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Fleiri fréttir Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Sjá meira