Kraftaverk hjá Mbappé sem kannski spilar á morgun Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2024 09:02 Kylian Mbappé virðist hafa náð ævintýralega hröðum bata. Getty/Denis Doyle Kylian Mbappé er afar óvænt í leikmannahópi Real Madrid sem ferðast til Frakklands og spilar þar við Lille í Meistaradeild Evrópu í fótbolta á morgun.
Mbappé meiddist í læri í deildarleik gegn Alaves fyrir rúmri viku og var þá talað um að hann yrði frá keppni í um þrjár vikur. Hann missti af Madridarslagnum á sunnudagskvöld þegar Real og Atlético Madrid gerðu 1-1 jafntefli í leik þar sem ólæti áhorfenda vörpuðu skugga á leikinn. 📋✅ ¡Nuestros convocados!🆚 @losclive#UCL pic.twitter.com/IDDDNSyIh5— Real Madrid C.F. (@realmadrid) September 30, 2024 Nú er útlit fyrir að það gæti orðið eini leikurinn sem Mbappé missir af vegna meiðslanna. Samkvæmt Marca kom í ljós að meiðslin væru ekki eins alvarleg og í fyrstu var talið, og Mbappé verður því með á æfingu í Frakklandi í dag, öfugt við markvörðinn Thibaut Courtois sem meiddist gegn Atlético og verður líklega ekki með aftur fyrr en eftir landsleikjahléið sem hefst eftir viku. Samkvæmt frétt Relevo ætla Madridingar að fara varlega með Mbappé en ef vel gengur á æfingu í dag er samt ekki útilokað að hann byrji leikinn gegn Lille. Real á svo eftir deildarleik við Villarreal á laugardaginn áður en við tekur landsleikjahlé. Næsti leikur eftir það er við Celta Vigo 19. október.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira