Menning

Varpa ljósi á mikil­vægi og gæði ís­lenskrar hönnunar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt eru kynnar og sjá um að leiða samtal við tilnefnda á Hönnunarverðlaununum í ár.
Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt eru kynnar og sjá um að leiða samtal við tilnefnda á Hönnunarverðlaununum í ár. SAMSETT

Menningarlífið hérlendis iðar um þessar mundir þar sem afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fer fram á fimmtudag í Grósku.

Vara, staður og verk

Fyrir verðlaunaafhendinguna verður sjónum beint að þeim fjölbreyttu verkum sem hljóta tilnefningu í ár og gestum gefst tækifæri til að fá innsýn og taka þátt í samtali um þau.

Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þremur verðlaunaflokkum undir heitunum Vara // Staður // Verk. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2024 sem eru hvoru tveggja heiðurs- og peningaverðlaun. 

Auk þess verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

Hönnuðir og höfundar tilnefndra verka munu stíga á svið í Grósku og fjalla um verkefnin sín, innblástur, hugmyndir, útkomu og áhrif. 

Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt eru kynnar og sjá um að leiða samtal við tilnefnda. Í kjölfarið fer fram afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 ásamt fögnuði og skál.

Lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið

Í fréttatilkynningu segir:

„Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er verið er að leita að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs.

Verkefnin þurfa að endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.

Verðlaunin varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt.“

Heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi ævistarf

Að auki verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

„Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning veitt fyrirtæki sem hefur hönnun og arkitektúr að leiðarljósi í starfsemi sinni til að auka gæði, verðmætasköpun og samkeppnishæfni. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.

Heiðursverðlaun er viðurkenning veitt einstaklingi sem hefur náð einstökum árangri í starfi, verið mjög áhrifamikill á sínu fagsviði eða hefur skilað framúrskarandi ævistarfi á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi.“

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu, Samtök iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku og Vísindagarða Háskóla Íslands.

Hér má skoða viðburðinn nánar og hér má nálgast nánari upplýsingar um tilnefningarnar.

Hér má sjá tilnefningarnar í ár: 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×