Í fréttatilkynningu um vefinn segir að eftirlit með því að vörur uppfylli þær kröfur sem gerðar eru hér á landi sé í dag í höndum níu ólíkra eftirlitsstofnana. Hver stofnun sé með sérþekkingu á viðkomandi sviði en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, beri ábyrgð á samræmingu alls markaðseftirlits í landinu í samvinnu við hinar stofnanirnar.
Allar upplýsingar á einum stað og hægt að koma ábendingum á framfæri
Á grundvelli þessarar samvinnu hafi eftirlitsstofnanirnar níu nú sameinast um einn vettvang til að miðla til neytenda upplýsingum um öryggi og gera þeim kleift að sneiða hjá hættulegum vörum. Með tilkomu Vöruvaktarinnar sé auðveldara en áður fyrir neytendur að finna allar slíkar upplýsingar á einum stað. Einnig geti almenningur í gegnum Vöruvaktina komið á framfæri eigin ábendingum um hættulegar eða ólöglegar vörur.
Að Vöruvaktinni standi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, ÁTVR, Geislavarnir ríkisins, Neytendastofa, Fjarskiptastofa, Samgöngustofa, Umhverfisstofnun, Lyfjastofnun og Vinnueftirlitið.