Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. nóvember 2024 23:02 Tindastóll braut 100 stiga múrinn í kvöld. Vísir/Jón Gautur Tindastóll og Þór Akureyri unnu góða útisigra í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Stólarnir lögðu Stjörnuna á meðan Þórsarar lögðu Hamar/Þór í háspennuleik.
Í Garðabæ var það frábær fjórði leikhluti sem tryggði gestunum frá Akureyri sigur. Þór vann síðasta leikhluta níu stiga mun og leikinn með sex stigum, lokatölur 88-94. Diljá Ögn Lárusdóttir var stigahæst í liði Stjörnunnar með 28 stig og Ana Clara Paz kom þar á eftir með 23 stig. Denia Davis- Stewart skoraði svo 19 stig og gaf 10 stoðsendingar. Hjá Þór Ak. skoraði Esther Marjolein Fokke 30 stig ásamt því að taka 8 fráköst. Þar á eftir kom Amandine Justine Toi með 22 stig á meðan Madison Anne Sutteon endaði með þrefalda tvennu; 13 stig, 13 fráköst og 12 stoðsendingar. Í Hveragerði var Tindastóll í heimsókn og þar var það einnig fjórði leikhlutinn sem skar úr um hvort liðið fór með sigur af hólmi. Stólarnir unnu leikhlutann með sjö stiga mun og leikinn með tveimur stigum, lokatölur 103-105. Abby Claire Beeman skoraði 27 stig í liði Hamar/Þórs ásamt því að gefa 16 stoðsendingar og taka sex fráköst. Hana Ivanusa kom þar á eftir með 21 stig. Randi Keonsha Brown var stigahæst hjá Stólunum með 42 stig ásamt því að taka 7 fráköst. Oumoul Khairy Sarr Coulibaly skoraði svo 13 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Eftir leiki kvöldsins eru Þór Ak. og Tindastóll í 4. og 5. sæti með fjóra sigra og fjögur töp að loknum átta leikjum. Hamar/Þór og Stjarnan eru er í 7. og 8. sæti með þrjá sigra og fimm töp til þessa.
Körfubolti Bónus-deild kvenna Tindastóll Þór Akureyri Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira