Mikil spenna í Eyjum Sindri Sverrisson skrifar 14. desember 2024 15:08 Ásbjörn Friðriksson var að vanda áberandi í liði FH í dag. vísir/Anton ÍBV og Íslandsmeistarar FH gerðu jafntefli, 26-26, í miklum spennuleik í Olís-deild karla í handbolta í Vestmannaeyjum í dag.
ÍBV komst reyndar í 8-4 en FH skoraði fimm næstu mörk og eftir það var leikurinn hnífjafn og spennandi fram á síðustu sekúndu. FH-ingar voru 13-11 yfir í hálfleik og höfðu frumkvæðið framan af seinni hálfleik en Eyjamenn komust svo yfir, 23-22, þegar Gauti Gunnarsson skoraði sjö mínútum fyrir leikslok. En FH náði svo aftur forystunni, 26-25, með marki Jóhannesar Bergs Andrasonar áttatíu sekúndum fyrir leikslok. Dagur Arnarsson náði að jafna metin fyrir ÍBV tæpri mínútu fyrir leikslok en sá tími nægði FH ekki til að finna sigurmark og niðurstaðan því jafntefli. Ásbjörn Friðriksson og Jóhannes Berg skoruðu sex mrk hvor fyrir FH og Birgir Már Birgisson fimm. Hjá ÍBV voru Dagur og Gauti markahæstir með sex mörk hvor og Kári Kristján Kristjánsson skoraði fimm. Til stóð að ÍBV og FH myndu mætast aftur næsta miðvikudag, í Powerade-bikarnum, en þeim leik hefur verið frestað vegna óvissu um endanlega niðurstöðu í bikarleik ÍBV og Hauka, en búist er við niðurstöðu áfrýjunardómstóls í næstu viku. FH er nú með 22 stig í efsta sæti Olís-deildarinnar, þremur stigum á undan Aftureldingu sem nú á leik til góða. ÍBV er með 14 stig í 6. sæti.
Olís-deild karla FH ÍBV Mest lesið Danir óstöðvandi Handbolti „Hjá þessu félagi þarftu að vinna alla leiki“ Fótbolti Orri Steinn kom ekki við sögu í tapi Sociedad Fótbolti „Keppni um hvort liðið myndi ná að strengja saman nokkur stopp í röð“ Körfubolti „Þeir voru pottþétt að spara“ Handbolti „Erum í þessu til þess að vinna“ Körfubolti Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“ Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 97-79 | Öruggt hjá heimamönnum á Króknum Körfubolti Loks vann Tottenham Fótbolti Bruno til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Danir óstöðvandi Lærisveinar Alfreðs með mikilvægan sigur á Ítalíu Uppgjörið: ÍR - Haukar 25-26 | Hafnfirðingar upp í annað sætið eftir dramatískan endi „Þeir voru pottþétt að spara“ Selbit og stuð hjá strákunum í Zagreb Halda í veika von og gætu mætt Íslandi Áfall fyrir Noreg: Sagosen meiddur Mikilvægir McDonalds borgarar eftir leik: „Biðin hverrar mínútu virði“ Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“ Ítalir fundu landsliðsmarkvörðinn á Facebook Svona fögnuðu Strákarnir okkar inni í klefa HM í dag: Þetta er heimsklassa lið Með geðveika hendi og öll skotin í bókinni Gæti enn allt farið fjandans til með fjögurra marka tapi „Slakiði á maður, eru þið ruglaðir?“ „Aron er betri handboltamaður en Óli Stef“ Myndasyrpa frá sigrinum sem kom Íslandi einu skrefi nær átta liða úrslitum Skýrsla Henrys: Það liggur eitthvað í loftinu Einkunnir Strákanna okkar á móti Egyptalandi: Nokkrir með fullt hús „Ég held að við höfum ekki verið svona góðir í áratug“ „Þurfum að halda okkur á jörðinni“ „Leið eins og þeir kæmust ekki í gegn“ „Geðveikt að sjá þennan bláa vegg“ Tölfræðin á móti Egyptum: Aron og Viggó fóru fyrir sókninni þegar mest á reyndi Noregur marði Spán „Kannski er ég orðinn frekur“ Umfjöllun: Egyptaland - Ísland 24-27 | Annar frábær sigur og átta liða úrslit í sjónmáli Valur ekki í teljandi vandræðum með Gróttu „Ég reifst ekki við Cindric og er ekki á leið til Flensburg“ Lærisveinar Dags unnu Grænhöfðaeyjar með tuttugu marka mun Sjá meira