Innlent

Út­köll víða vegna ó­veðurs

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Björgunarsveitarmönnum tókst að tryggja landfestar og koma í veg fyrri að báturinn slitnaði frá.
Björgunarsveitarmönnum tókst að tryggja landfestar og koma í veg fyrri að báturinn slitnaði frá. Landsbjörg

Björgunarfélag Akraness var kallað út undir hádegið vegna báts í Akraneshöfn sem var við það að slitna frá bryggju vegna hvassviðris.

Björgunarbáturinn Jón Gunnlaugsson og lóðsbáturinn Þjótur voru mannaðir og náðu að koma bátnum aftur að bryggju þar sem landfestar voru tryggðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Björgunarbáturinn Jón Gunnlaugsson og lóðsbáturinn Þjótur brugðust skjótt við.Landsbjörg

Í Vestmannaeyjum var Björgunarfélag Vestmannaeyja einnig kallað út vegna flutningabíls sem stóð skammt frá Eldfelli en vindurinn var við það að rjúfa þekju tengivagnsins sem hefði þá getað splundrast vegna vinds en komið var í veg fyrir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×