Fótbolti

„Vonandi færir nýja árið okkur titla“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Declan Rice er bjartsýnn fyrir komandi ári.
Declan Rice er bjartsýnn fyrir komandi ári. David Price/Arsenal FC via Getty Images

Declan Rice, leikmaður Arsenal, er bjartsýnn fyrir nýju ári og vonast til að liðið vinni titla árið 2025.

Rice fór yfir möguleika Arsenal á komadi ári í viðtali við Amazon Prime eftir 1-0 sigur liðsins gegn Ipswich í gær.

„Þetta er búið að vera viðvarandi hjá okkur, að við séum með fulla stjórn á leikjunum en liðin mæta hingað og leggjast djúpt. Það er erfitt að brjóta niður þessa 5-4-1 uppstillingu sem við þurfum svo oft að spila á móti,“ sagði Rice eftir sigur gærdagsins.

„Mér fannst við geta skorað eitt eða tvö í viðbót, en sem betur fer náðum við að landa mikilvægum sigri.“

„Þetta er búið að vera gott ár og við höfum gert vel, en þetta hefur ekki verið alveg það sem við viljum,“ sagði Rice svo þegar hann var spurður út í hvernig árið 2024 hafi verið fyrir hann og liðið.

„Vonandi færir nýja árið okkur titla. Við þurfum að taka næsta skref til að liðið geti verið talið með þeim allra bestu. Við getum haldið áfram að vinna leiki, en það skiptir engu máli ef við vinnum enga titla.“

Þá segir hann að liðið gæti þurft á hjálp að halda til að ná toppliði Liverpool í titilbaráttunni.

„Ég ber mikla virðingu fyrir þeim. Þeir eru á fullu gasi og þeir gefa ekkert andrými eftir. Við þurfum að fá hjálp einhversstaðar frá svo þeir fari að tapa einhverjum stigum,“ sagði Rice að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×