Lífið

Bak við tjöldin í Kryddsíldinni 2024

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Synir Þorgerðar Katrínar þeir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Gunnar Ari Kristjánsson stóðust ekki mátið og fengu mynd af sér með mömmu og nýbökuðum forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur.
Synir Þorgerðar Katrínar þeir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Gunnar Ari Kristjánsson stóðust ekki mátið og fengu mynd af sér með mömmu og nýbökuðum forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur. Vísir/Hulda Margrét

Kryddsíld Stöðvar 2 var á sínum stað á Gamlársdag líkt og síðustu þrjátíu og fjögur ár. Með sanni má segja að þátturinn hafi verið sérstaklega fjörugur í þetta skiptið en Hulda Margrét ljósmyndari tók myndir af hamagangnum á bak við tjöldin.

Umsjónarmenn þáttarins voru ritstjóri og fréttastjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, þau Erla Björg Gunnarsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason. Telma Tómasson var svo gestgjafi þáttarins þar sem Yazan Tamimi var kunngjörður sem maður ársins hjá fréttastofunni.

Óhætt er að segja að umræður stjórnmálaleiðtoganna sem í þetta skiptið voru sex eftir nýafstaðnar alþingiskosningar hafi verið fjörugar. Gríðarleg stemning var í loftinu líkt og myndir Huldu Margrétar hér að neðan bera með sér enda ótrúleg vinna sem fór í að undirbúninginn á þessum stærsta þjóðmálaþætti hvers árs. 

Framleiðendurnir Nanna Guðrún Sigurðardóttir og Kristín Kristinsdóttir fóru mikinn í bakherberginu.Vísir/Hulda Margrét

Inga Sæland var í góðum höndum hjá Rakel Maríu Hjaltadóttur.Vísir/Hulda Margrét

Telma Tómasson og Erla Björg Gunnarsdóttir í góðum höndum tilbúnar í 34. Kryddsíldina.Vísir/Hulda Margrét

Sigmundur Davíð öllu vanur þegar kemur að förðun, enda í góðum höndum Írisar Bergs.Vísir/Hulda Margrét

„Lítur vel út!“Vísir/Hulda Margrét

Sigurjón Arnarsson aðstoðarmaður Ingu Sæland mætti með sínu fólki að styðja sína konu.Vísir/Hulda Margrét

Miðflokksfólk studdi sinn mann.Vísir/Hulda Margrét

Stemning í salnum.Vísir/Hulda Margrét

Blaðamannatríóið Jón Þór Stefánsson, Máni Snær Þorláksson og Vésteinn Örn Pétursson voru hressir að vanda.Vísir/Hulda Margrét

Aðstandendur formannanna létu sig ekki vanta.Vísir/Hulda Margrét

Það var gleði í lofti hjá förðunarfræðingunum Írisi Bergs og Rakeli Maríu þegar þær tóku á móti Þorgerði Katrínu og Kristrúnu Frostadóttur.Vísir/Hulda Margrét

Tökumenn og þáttastjórnendur fara yfir málin.Vísir/Hulda Margrét

Jóhann Gunnar Arnarson, frægasti bötler landsins, sýndi í þættinum að hann kann að opna kampavínsflösku með sverði.Vísir/Hulda Margrét

Tökumennirnir Egill Aðalsteinsson, Alfreð Sturla Böðvarsson og Einar Árnason voru alvörugefnir á svip.Vísir/Hulda Margrét

Pétur Marteinn Urbancic og Garðar Árni Garðarsson í góðum félagsskap.Vísir/Hulda Margrét

Ungir sjálfstæðismenn létu sig ekki vanta með Hermann Nökkva Gunnarsson blaðamann á Mbl.is í broddi fylkingar.Vísir/Hulda Margrét

Framleiðandinn Nanna Guðrún Sigurðardóttir alvörugefin á svip, enda mikið að gerast.Vísir/Hulda Margrét

Gestir í sal tryggðu mikla stemningu þáttarins. Karl Ferdinand Thorarensen og Nichole Leigh Mosty voru í góðum gír og þeim mun betri félagsskap.Vísir/Hulda Margrét

Hæfileikabúntið Einar Lövdahl sló í gegn með frumsömdu lagi.Vísir/Hulda Margrét

Inga Sæland og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson notuðu áramótaskrautið vel og voru kát að þætti loknum þrátt fyrir að hafa tekist hressilega á í umræðum.Vísir/Hulda Margrét

Það má njóta lífsins að loknum tökum á Kryddsíld.Vísir/Hulda Margrét

Þáttastjórnendurnir Erla Björg Gunnarsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason voru í stuði og settu að sjálfsögðu upp hattana.Vísir/Hulda Margrét

Inga Sæland og Sigmundur Davíð sprengdu áramótasprengju saman eftir að hafa tekist á.Vísir/Hulda Margrét

Þorgerður Katrín og Bjarni Benediktsson sérlega glæsileg með áramótakórónur að þætti loknum.Vísir/Hulda Mar

Drykkir á borði og gleði í lofti.Vísir/Hulda Margrét

Húsbandið ómissandi hluti af þættinum. Kristinn Svavarsson á saxófón og Unnur Birna Bassadóttir söng auk þess að spila á fiðlu.Vísir/Hulda Margrét

Það má knúsast að loknu góðu verki!Vísir/Hulda Margrét

Kristín Kristinsdóttir og Aníta Guðlaug Axelsdóttir framleiðendur eru konurnar sem báru höfuðábyrgð á síldinni. Þær skáluðu eðlilega að þætti loknum.Vísir/Hulda Margrét

Án þessa glæsilega fólks hefði Kryddsíldin 2024 aldrei orðið að veruleika.Vísir/Hulda Margrét

Átt þú mögulega eftir að horfa á Kryddsíldina? Það er ekki of seint og má horfa á hana í spilaranum að neðan.


Tengdar fréttir

Bjarni sveiflaði servíettunni af gleði

Flestir landsmenn virðast telja Sjálfstæðisflokkinn halda bestu partýin. Formaður Framsóknarflokksins telur landsmenn vanmeta stuðið hjá flokknum.

„Ekki gera lítið úr þriðja formanninum“

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, að gera ekki lítið úr Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og félagsmálaráðherra. Það gerði Kristrún í Kryddsíldinni á gamlársdag eftir að Sigmundur gagnrýndi Ingu og sagði hana þurfa að tala af ábyrgð.

„Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“

„Það er líka annað sem við segjum sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir í sumar og marg stunguð hausnum í sandinn með það. Við ætlum að koma því á að erlendir glæpamenn sem fremja hér mikla glæpi þrátt fyrir að hafa fengið alþjóðlega vernd, eins og þessi ágæti maður sem hefur tekið upp nafn fyrrverandi forseta, að við munum umsvifalaust senda þau úr landi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.