Innlent

Veður gæti haft á­hrif á brennuhald

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Brennan við Ægissíðu í Vesturbæ Reykjavíkur er alltaf vel sótt á þessum degi að sögn verkefnastjóra.
Brennan við Ægissíðu í Vesturbæ Reykjavíkur er alltaf vel sótt á þessum degi að sögn verkefnastjóra. Reykjavíkurborg

Jólin verða kvödd með þrettándabrennum víða um land í kvöld, það er að segja ef veður leyfir. Útlit er fyrir norðanátt í dag og nokkuð vindasamt veður. 

Kveikt verður í brennum á Akranesi, í Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Mosfellsbæ og á tveimur stöðum í Reykjavík, Ægissíðunni í Vesturbæ og við Gufunesbæ í Grafarvogi - svo dæmi séu tekin.

Hörður Heiðar Guðbjörnsson, verkefnastjóri hjá Vesturmiðstöð sér um brennuna á Ægissíðu.

„Þetta verður svipað og undanfarin ár. Við breytum ekkert út af venjunni og byrjum við Melaskóla þar sem verður fjöldasöngur sem Sveinn, kennari í Melaskóli, stjórnar. Þeir sem tengja við skólann vita hver hann er. Hann hefur séð um þetta undanfarin ár og verið flottur í því.“

Og safnast fólk saman við skólann klukkan sex í kvöld. Í framhaldinu mun hópurinn ganga frá Melaskóla að Ægissíðunni í traustri fylgd lögreglu.

„Klukkan hálf sjö þá kveikjum við í brennunni, það er að segja ef að veður leyfir. Það er pínu vindur úti akkúrat núna en miðað við veðurspár sem aldrei klikka á að lægja seinnipartinn og þá verður þetta ekkert vesen.“

Vindur gæti sett strik í reikninginn

Útlit er fyrir norðanátt í dag og verður vindur víða á bilinu tíu til fimmtán metrar á sekúndu. Þar sem brennan við Ægissíðu stendur nálægt íbúabyggð má ekki kveikja í henni ef vindur fer yfir 10 metra á sekúndu. Hörður segir veðurspár gera ráð fyrir að veður lægi seinnipartinn.

„Miðað við veðurspána og það sem ég sá áðan þá ætti þetta að líta mjög vel út þannig stefnan er bara á að kveikja í brennunni klukkan hálf sjö og vonandi klikka veðurguðirnir ekkert.“

Vel sótt

Kyndlar verða til sölu hjá Melaskóla, jólasveinar mæta á svæðið og lýkur dagskránni með flugeldasýningu klukkan korter í sjö.

„Þetta er bara mjög vel sótt. Og hefur verið í þessi ár, ég held að þetta sé þrettánda árið sem ég kem að þessu, þá hefur þetta verið frábær hefð og ótrúlega skemmtilegt og mikil stemning sem myndast alltaf í kringum þessa hátíð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×