Innlent

Í­búar hafi óttast að svona gæti farið

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Bergþóra Pálsdóttir er ein þeirra sem býr í hjólhýsi á svæðinu. Hún segist hafa vaknað upp við mikil læti í nótt.
Bergþóra Pálsdóttir er ein þeirra sem býr í hjólhýsi á svæðinu. Hún segist hafa vaknað upp við mikil læti í nótt. vísir/vilhelm

Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir að eldur kom upp í hjólhýsabyggðinni sem myndast hefur á iðnaðarsvæði við Sævarhöfða í nótt. Íbúi á svæðinu segir aðbúnað skelfilegan, þeir hafi óttast að svona gæti farið.

Tilkynning um eldinn barst klukkan hálf fimm í morgun. Bergþóra Pálsdóttir er ein þeirra sem eru með fasta búsetu í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða. Hún segist hafa vaknað við mikil læti í nótt og brugðið verulega.

„Já þú getur rétt ímyndað þér, manni stendur ekki á sama.“

Hjólhýsi brunnu til kaldra kola í nótt.vísir/vilhelm

Var þetta nálægt þínu hjólhýsi? „Já það er eitt hús við hliðina á mér og það kviknaði í húsinu við hliðina á henni og barst yfir í húsbíl sem er þar við hliðina á. Þetta tvennt brann til kaldra kola. Húsið við hliðina á mér, það bráðnuðu gluggarnir hjá henni og svo barst þetta í fjórða hjólhýsi sem er fjær.“

Ekki mönnum bjóðandi

Hjólhýsi Bergþóru slapp og hefur hún hýst vinkonu sína þar sem hjólhýsi þeirrar síðarnefndu varð fyrir skemmdum. Bergþóra segir íbúa hafa óttast að svona gæti farið enda segja þeir aðstæður á svæðinu hræðilegar.

Frá vettvangi í morgun.Vísir/Vilhelm

„Þetta er hræðileg staðsetning. Við erum bara hér í umferðinni og erum búin að vera að berjast fyrir betra svæði og að hafa meira rými. Fyrir utan það þá erum við ekki með neina aðstöðu hér, ekki salerni, klósett, sturtu eða neitt. Það er að vísu eitt klósett uppi en þar er ískalt og er ekki mönnum bjóðandi.“

Lítið um svör

Hún segir að til hafi staðið að hjólhýsabyggðin yrði einungis til skamms tíma á svæðinu þar til betri staðsetning yrði fundin. Íbúar séu orðnir óþreyjufullir og lítið um svör frá borgaryfirvöldum.

„Þeir reyna að hunsa allt sem við reynum að tala um og benda á. Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar er búið að standa mikið með okkur og benda á fullt af svæðum, en nei við fáum ekkert.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×