Handbolti

„Líður eins og ég sé tví­tugur“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson á örugglega eftir að reynast íslenska liðinu vel á þessu móti rétt eins og á öllum hinum.
Björgvin Páll Gústavsson á örugglega eftir að reynast íslenska liðinu vel á þessu móti rétt eins og á öllum hinum. vísir/vilhelm

Markvörðurinn síungi Björgvin Páll Gústavsson er sem fyrr í leikmannahópi íslenska landsliðsins en þar hefur hann verið síðan árið 2008.

„Ég veit ekki númer hvað þetta mót er. Ég er hræðilegur með tölur og bið aðra um að telja það,“ sagði Björgvin Páll léttur er Vísir hitti á hann á hóteli landsliðsins í gær.

Klippa: Ný tilfinning með hverju móti

„Þetta er æði í hvert einasta skipti. Sama tilfinning og sami gírinn. Það er aðeins öðruvísi nálgun núna enda breytist mitt hlutverk,“ segir markvörðurinn sem verður í því hlutverki að byrja á bekknum og standa við bakið á Viktori Gísla Hallgrímssyni.

„Það er auðmýkt í því líka. Stór partur af mínu hlutverki er að verja bolta og stór hluti líka er að Viktor verji bolta. Það er okkar að finna þessa blöndu sem skilar okkur jafn mörgum boltum í öllum leikjum. Ég þarf að koma mér í þann gír að vera góður þegar ég kem inn á. Það er hlutverk sem ég þekki ekkert rosalega vel. Ég hef ekki verið varamarkvörður lengi og þarf að koma mér í þann gír.“

Íslenska liðið hefur ekki náð þeim hæðum sem vonast var eftir á síðustu stórmótum. Liðið er eftir sem áður metnaðarfullt.

„Ég held að andinn sé eins og hann eigi að vera. Það er léttleiki í bland við að menn séu krefjandi við hvorn annan,“ segir Björgvin en hluti af stórmótalífinu er að blanda geði og halda hvorum öðrum á tánum.

„Aðallega til að hressa upp á mig kíki ég á strákana. Við vorum að horfa á enska boltann og svo kíkti ég líka á strákana í playstation. Mér líður eins og ég sé tvítugur og finn ekki fyrir neinu kynslóðabili.“

Liðið ætlar sér stóra hluti en veit að það má ekki fara fram úr sjálfum sér.

„Hver og einn hefur sínar væntingar. Ef við hugsum of langt þá gleymum við riðlinum. Við vitum að við eigum að vinna Grænhöfðaeyjar og Kúbu. Þurfum að koma okkur í takt og vinna sannfærandi. Fara svo inn í leikinn gegn Slóveníu sem skiptir miklu máli. Við vitum líka að tap þar er ekki heimsendir,“ segir markvörðurinn ákveðinn.

„Eitt sem ég hef lært í gegnum tíðina er að þegar gekk best var það ekkert frábært. ÓL í Peking var ekkert frábært frá upphafi til enda og við byrjuðum hörmulega í Austurríki 2010. Snýst um að halda momentinu með sér og ekki fljúga of hátt eða of lágt.“

Leikur Íslands og Grænhöfðaeyja er klukkan 19:30 í kvöld. Strákunum okkar verður fylgt vel á eftir á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni fram að og eftir leik.


Tengdar fréttir

Strákarnir ferskir á æfingu í Zagreb

Íslenska karlalandsliðið í handbolta æfði í íþróttahöll liðs Tresnjevka í króatísku höfuðborginni Zagreb í morgun. Á æfingunni tóku allir leikmenn fullan þátt að Aroni Pálmarssyni undanskildum, sem leikur ekki með liðinu fyrr en í milliriðil verður komið.

Svona verður Ísland heimsmeistari

Ísland hefur keppni á HM karla í handbolta á morgun og því löngu tímabært fyrir aðdáendur liðsins að fara fram úr sjálfum sér í vangaveltum um leiðina að heimsmeistaratitlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×