Erlent

Betri að­stæður næstu daga: Rúm­lega tólf þúsund byggingar hafa brunnið

Samúel Karl Ólason skrifar
Hús í Pacific Palisades-hverfinu í Los Angeles sem brunnið hafa til grunna.
Hús í Pacific Palisades-hverfinu í Los Angeles sem brunnið hafa til grunna. AP/Carolyn Kaster

Slökkviliðsmenn eru sagðir hafa náð miklum árangri í baráttunni við tvo stóra elda sem brennt hafa heilu hverfin í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær. Það var eftir að vinda tók að lægja en enn stafar ógn af hviðum úr fjöllunum kringum borgina.

Veðurfræðingar búast við því að næstu daga muni hafgola bera rakt loft yfir borgina og að það muni hjálpa slökkviliðsmönnum að ráða niðurlögum eldanna. Í næstu viku er þó búist við frekari þurrum vindi úr austri, sem kallast Santa Ana, þó að aðstæður eigi ekki að vera eins slæmar og þær hafa verið hingað til, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Sterkir vindar hafa hingað til gert slökkvistarfið gífurlega erfitt og hafa borið glóð og logandi brak marga kílómetra.

Stærstu eldarnir tvær eru kenndir við Palisades og Eaton en samkvæmt gögnum á vef stofnunarinnar CalFire hafa slökkviliðsmenn náð nokkrum árangri í að berjast gegn þeim.

Samhliða betri aðstæðum hafa íbúar þessara hverfa sem hafa orðið hvað verst úti krafist þess að fá að fara aftur heim.

Kort af eldunum og lokuðum svæðum í Los Angeles.CalFire

Frá því eldarnir kviknuðu í síðustu viku hafa nokkrir verið handteknir fyrir að kveikja nýja elda í borginni en þessir eldar hafa verið slökktir áður en þeir náðu flugi, ef svo má segja.

Jim McDonnel, lögreglustjóri, sagði einn hafa viðurkennt að hafa kveikt eld í tré því honum þætti lyktin af brennandi laufum góð. Þá mun kona sem var handtekin hafa sagt að hún hefði gaman af óreiðu og eyðileggingu.

Hvernig Palisades og Eaton eldarnir kviknuðu þann 7. janúar liggur ekki fyrir. Að minnsta kosti 25 hafa dáið vegna þeirra og þúsundir heimila hafa brunnið til grunna. Talið er að rúmlega tólf þúsund byggingar hafi brunnið í eldunum tveimur, sem setur þá meðal skaðlegustu og mannskæðustu gróðureldum í sögu Kaliforníu, samkvæmt LA Times.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×