Körfubolti

„Þeim líður vel að hafa hann í kringum sig“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristófer Acox stimplaði sig inn í Bónus deild karla í körfubolta á ný með frábærri frammistöðu í fyrsta leik sínum síðan hann meiddist illa í oddaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn síðasta vor.
Kristófer Acox stimplaði sig inn í Bónus deild karla í körfubolta á ný með frábærri frammistöðu í fyrsta leik sínum síðan hann meiddist illa í oddaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn síðasta vor. Vísir/Bára

Kristófer Acox er mættur aftur í slaginn eftir erfið meiðsli og hann hjálpaði Valsmönnum að vinna mikilvægan leik í síðustu umferð. Bónus Körfuboltakvöld fór yfir endurkomu fyrirliða Valsmanna inn á parketið.

Kristófer var með 16 stig og 10 fráköst og þeim rúmu átján mínútum sem hann spilaði í leiknum á móti Álftanesi sem eru frábærar tölur. Valsliðið vann líka með sextán stigum þær mínútur sem hann spilaði.

„Hann skilaði miklu meira heldur ábyggilega flestir áttu von á og jafnvel hann sjálfur,“ sagði Pavel Ermolinskij, sérfræðingur hjá Körfuboltakvöldi.

„Stærsta atriðið í þessu fyrir Val er að fá hann aftur inn á völlinn. Það er það sem gerði mest fyrir þá er að sjá andlit hans inn á vellinum. Þeim líður vel að hafa hann í kringum sig. Það gefur liðinu sjálfstraust að hafa Kristófer Acox með sér inn á vellinum,“ sagði Pavel.

„Hann var frábær í þessum leik og þó að hann hefði ekki gert það sem hann gerði, þá er það sigur fyrir þá að fá hann til baka. Þeim líður betur með hann þarna. Þeir eru búnir að vera að bíða eftir þessu og við erum búnir að vera að bíða eftir þessu,“ sagði Pavel.

„Hann spilaði frábærlega, þeir unnu leikinn og spiluðu vel. Þetta gat ekki farið betur í raun og veru í þessum leik sem var svo rosalega mikilvægur fyrir bæði liðin. Þetta gat ekki farið betur fyrir Kristófer og Val. Draumastöff,“ sagði Pavel.

„Það er bara eins og hann hafi aldrei farið. Tölurnar eru bara þannig eins og þegar hann var að spila upp á sitt besta. Þetta eru bara Kristó tölur,“ sagði Teitur Örlygsson, sérfræðingur hjá Körfuboltakvöldi.

„Þetta er frábært fyrir Valsmenn en þetta má ekki gefa honum einhverja falsvon heldur. Kristófer er ekki að fara að breyta öllu,“ sagði Teitur.

Það má sjá alla umfjöllun þeirra um endurkomu Kristófer Acox hér fyrir neðan.

Klippa: „Hann skilaði miklu meira heldur ábyggilega flestir áttu von á“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×