Innlent

„Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar um­hverfis- og auðlindamála

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Unnið er að tillögum um breytingar á vöruskemmunni svokölluðu.
Unnið er að tillögum um breytingar á vöruskemmunni svokölluðu. Vísir/Vilhelm

Búseti hefur kært framkvæmdir við Álfabakka 2-4 og segir þær brjóta í bága við lög og reglugerðir. Lögmaður Búseta segir ekki hafa verið vandað til verka af hálfu Reykjavíkurborgar.

Frá þessu greinir Morgunblaðið í dag en í blaðinu segir að stjórnsýslukæra Búseta hafi borist úrskurðarnefnd umhverfis- og skipulagsmála 14. janúar síðastliðinn. Frestur Reykjavíkurborgar og framkvæmdaaðila til að veita umsögn hafi runnið út í gær.

Gerðar eru kröfur um að framkvæmdirnar verði stöðvaðar og ákvörðun byggingafulltrúa felld úr gildi.

Erlendur Gíslason, lögmaður Búseta, segir ýmislegt athugavert við málið. Afstöðumyndir fullnægi ekki skilyrðum þar sem þær sýni ekki afstöðu til nærliggjandi bygginga. Þá segi í byggingarleyfinu að framkvæmdin skuli unnin eftir samþykktum aðal- og séruppdráttum en þeir virðist ekki hafa verið lagðir fram fyrr en eftir að byggingarleyfið var gefið út.

Mannvirkið og notkun þess brjóti auk þess í bága við skipulag og leggja hefði þurft mat á það hvort framkvæmdin þyrfti að fara í umhverfismat, vegna stærðar gólfflatar fyrirhugaðrar kjötvinnslu.

Til viðbótar hafi auglýsingar um breytt deiliskipulag ekki fullnægt kröfum, né heldur hafi verið gefnar fullnægjandi upplýsingar um það hvers konar mannvirki var að ræða þegar byggingarleyfið var gefið út. Ekkert mat hafi verið lagt á umferð og þá hafi íbúar fengið villandi svör frá borginni.

Samkvæmt Morgunblaðinu segir í umsögn framkvæmdaraðila, Álfabakka 2, að félagið hafi átt umfangsmikil samskipti við sérfræðinga Reykjavíkurborgar. Í umsögn borgarinnar segi að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að mannvirkið sé ekki í samræmi við lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×