Erlent

Líf norsku stjórnarinnar hangir á blá­þræði vegna fjórða orku­pakkans

Kjartan Kjartansson skrifar
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, og Trygve Slagsvold Vedum, fjármálaráðherra og leiðtogi Miðflokksins. Flokkar þeirra gætu haldið hvor í sína áttina eftir fundarhöld dagsins.
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, og Trygve Slagsvold Vedum, fjármálaráðherra og leiðtogi Miðflokksins. Flokkar þeirra gætu haldið hvor í sína áttina eftir fundarhöld dagsins. Vísir/EPA

Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna í Noregi funda um framtíð samstarfs þeirra í dag. Óeining á milla flokkanna um svonefndan fjórða orkupakka Evrópusambandsins gæti splundrað stjórninni.

Þingmönnum bæði Verkamannaflokks Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra, og Miðflokksins hefur verið sagt að vera tilbúnir fyrir skyndifundi í dag og í kvöld fyrir utan þingflokksfundi sem eiga að fara fram um miðjan dag, að sögn norska ríkisútvarpsins.

Deilurnar á milli flokkanna tveggja snúast um innleiðingu á þremur tilskipunum Evrópusambandsins sem eru hluti af svonefndum fjórða orkupakka þess. Verkamannaflokkurinn vill innleiða þá strax í anda góðs Evrópusamstarfs. Það vill Miðflokkurinn ekki sjá þar sem hann er á móti nánara samstarfi við ESB. 

Rafmagnsverð hefur verið í hæstu hæðum í Noregi að undanförnu og eru orkumál efst á baugi í norskum stjórnmálum. Bæði Verkamannaflokkurinn og Miðflokkurinn hafa sagst vilja hætta að flytja út rafmagn til Danmerkur þegar samningur um útflutninginn rennur út á næsta ári. Miðflokkurinn er meðal annars á móti fjórða orkupakkanm þar sem hann segir tilskipanirnar skapa enn frekari óvissu á raforkumarkaði.

Hugsanlegt er talið að Miðflokkurinn gangi út úr ríkisstjórninni. Norska ríkisútvarpið segir að þá stæði eftir minnihlutastjórn Verkamannaflokksins sem væri langt frá meirihluta á þingi. Slík stjórn þyrfti að reiða sig á stuðning nokkurra flokka til þess að koma málum í gegnum.

Þingkosningar eiga að fara fram í Noregi í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×