Hinir ótal fletir á uppgjöri fortíðarinnar Matthildur Björnsdóttir skrifar 8. febrúar 2025 18:02 Hvað geta eða munu næstu kynslóðir læra af þeim? Þau orð voru í raun ekki í málinu eða hugsun þjóðarinnar svo að ég muni, á mínum tímum á landinu til ársins 1987. Við áttum bara að fara áfram. Og alls ekki líta til baka. Í öðrum orðum þýddi það að sópa öllu sem hægt væri að læra af, undir teppin. En ég sé á blöðum, að það viðhorf er sem betur fer ekki lengur ráðandi. Skilaboðin á persónulegum grundvelli voru að mestu leyti þau, að fortíð okkar væri búin. Og að það væru engar afleiðingar af neinu erfiðu í okkur. Það ætti allt að hafa verið „Fyrir-gefið“ gleymt, grafið, og eytt úr okkur. Engar leyfar af gærdeginum leifðar eða ætlaðar. Nú veit þjóðin annað.... Það var líka oft talað um æskuna sem draumatímabil fyrir öll börn. Sem var frá þessari blindu goðsögn presta: Að allir sem settu börn í heiminn væru fullkomnir foreldrar sem höfðu þráð að fá börnin inn í líf sitt. Nú eru sum þeirra að segja aðra sögu. Goðsögn sem var ekki nærri alltaf veruleiki þeirra einstaklinga sem settu börnin í heiminn fyrir daga getnaðarvarna. Sem betur fer var og er stór hluti foreldra í því ástandi, mynstri og með þá þrá. En því miður voru og eru, ótal ástæður fyrir: Að svo er ekki alltaf. Ekkert rými var fyrir þá hugsun að fortíðin veitti tækifæri til lærdóms. Sem þá leiddi, og leiðir, slíkt viðhorf til allskonar óhollra endurtekninga. Á hinn veginn áttum við að setja hugann í aðdáun á hugrekki þeirra sem námu landið fyrir ótal árum. Barátta þeirra sem námu landið í flótta frá Haraldi Hárfagra konungi Noregs þá. Fyrir þau þá var það auðvitað mest til að haldast á lífi, hafa eitthvað að borða, fá skjól yfir höfuðið. Og ekki síst rétt til að ráða sér sjálf. Þær löngu dánu mannverur sem höfðu tekið land á þessari eyju, sem er Ísland. Voru þá séðar sem mun mikilvægari, en sögur einstaklinga seinni tíma. Nema ef þau hefðu gert eitthvað hetjulegt. Hetju viðhorfin voru þau að þau náðu að skapa sér grunnatriði til að lifa eigin lífi, og byggja torfhýsi. Sem var löngu fyrir þá tíma, sem við, mín og nokkuð margar fyrri kynslóðir höfum verið á landinu. Með eitthvað af erfiðu tilfinningum landnemanna sitjandi í okkur án þess að við hefðum glóru um það. Urðum líka iðin við að halda áfram að skapa framtíð fyrir okkur í þessu lífi. En á allt öðrum tímum við allt aðrar kringumstæður. Og með allar þessar fyrri reynslur að baki, sem atriði frá laumast stundum inn í heilabúið. Svo hverjir eru alvöru hetjur? Það kæmu ábyggilega mismunandi svör um það frá mismunandi einstaklingum. Litríki áskorana sem mannkyn hefur fyrir uppgjörið Í aðal-atriðum væru það tveir flokkar. Þau sem hafi upplifað stóra og mikilvæga atburði, slys, upplifað stríð, dráp og eyðileggingu. Atvik sem eru auðvitað átak sem er erfitt að þekkja að gagni nema hafa verið í þeim sporum. Eða verið heppin að hafa átt ljúft líf frá upphafi. Svo eru þau sem náðu að birtast sem stórkostlegir einstaklingar þrátt fyrir mjög erfitt líf og barnæsku. Og slíkir einstaklingar birtust stundum í Dr Phil þáttunum. Ekki má gleyma þeim sem hafi haft allt sjálfvirði lamið niður af vansælu foreldri. Og ekki endilega lifað æskuna sem þá goðsögn, sem prestar lofuðu í áratugi. Orð sögð með því markmiði að halda fólki í einskonar trúar spennutreyju. Spennitreyju sem allavega sum börn vissu, að væri ekki veruleiki. Mottó yfirvalda virtist vera gegn því til dæmis: Að við mannverur á hvaða tíma sem var lærðum hver við værum sem einstaklingar. Mikilvægi sjálfs uppgötvunar var ekki séð sem atriði sem þyrfti að gerast. En er sem betur fer að gerast nú á tímum. Tilgangurinn með því að leggja ekki áherslu á það mikilvæga atriði hefði hugsanlega verið til að halda öllum frá gagnrýni á ákvarðanir þeirra. Eins og við sjáum Trump í dag vilja sjá sem einskonar lög. Á og í landi sem hafði og hefur engan her. Þá væru einstaklings uppgjörs sögurnar við fortíðina á tilfinningasviði auðvitað mismunandi. Samt að miklu leyti hliðstæðar að vissu magni. Það auðvitað miðað við þau sem bjuggu í löndum þar sem stríð voru. Ótal mannverur drepnar, og hús og byggingar lögð við jörðu. Það væri því fróðlegt að bera slíkar sögur saman sem væru uppgjör við fortíðina. Hver einstaklingur hefði sína þörf og sinn smekk fyrir það. Þær frá innri heimi flókinna tilfinninga í mannverum á Íslandi. Tilfinningar sem fengu enga athygli eða virðingu, og það séð sem dyggð að halda þeim öllum inni. Hvernig eiga mannverur sem sáu börn sín og lífsförunauta deyja í þessum stríðum að ná að gera upp þá fortíð. Á einn veginn um eigin líðan og tilfinningar, og á hinn veginn hugsanir um hugarfar þeirra sem af ásættu ráði settu líf milljóna á skjön. Þá var engin almenn þekking á afleiðingum erfiðrar reynslu á og í líkama mannvera. Svo hverju munu uppgjörin svo geta skilað fyrir framfarir? Pandóru Boxið um slíkt hefur verið opnað af fræðingum Ég vissi innsæislega fyrir meira en hálfri öld að erfiðar tilfinningar hyrfu ekki si svona út í buskann um leið og reynslan gerðist. En fékk algera afneitun á því frá þeirri sem ég fræddi um það þá. Thomas Hubl og Peter A Levine eru þeir fræðingar sem staðfestu það sem ég hafði vitað öll þessi ár. Ég hafði beðið eftir að fá þær staðfestingar sem þeir veita. En er kunnugri um leiðir Peter fyrir heilun, sem ég mæli með að þau sem þurfi kaupi og nýti sér. Hann hefur skrifað margar bækur en Thomas Hubl tvær. Tjáning og vinna með allsonar líkamleg atriði eru víst mikilvægasta leiðin samkvæmt Peter A Levine til að létta á slíkri innri byrði. Peter A Levine fæddist árið 1942, fimm árum á undan mér. Vel fyrir tíma viðurkenningar til almennings á slíku. Bækur hans sýna einstakt innsæi, skilning og svo rannsóknir á afleiðingum ótal erfiðra lífsreynslu atvika. Thomas Hubl segir að erfiðu tilfinningarnar fari hratt framhjá heilabúinu og beint inn í taugakerfin og svo niður kynslóðirnar. Það hefur greinilega verið í gangi án þess að mannkyn skildi hvað væri í gangi í þeim. Fyrir börn og yngri mannverur færi erfiða reynslan hratt „Án viðkomu í heilabúið“ og beint inn í taugakerfin. Af því að engin börn hafa færni í að verja sig og standa gegn því erfiða sem þeim sé gert. Þar eigi hún til að geymast í mjög langan tíma og fara niður kynslóðirnar. Það magn kalla ég mengaðar taugar sem samkvæmt nýrri viðurkenningu á það til að skapa tjón í ýmsum hlutum líkamans. Sú eyðilegging getur gerst fljótt eða ekki fyrr en áratugum síðar. Hvernig hver mannvera nái að losa þá mengun úr kerfunum væri mismunandi. Með eldri einstaklinga væri það hugsanlega blandað. Það færi eftir styrk hvers og eins til að standa gegn slæmum árásum og orðum á sig, hve mikið myndi hlaðast inn í taugakerfin. Sem dæmi um það er líka, að systkini eru mismunandi einstaklingar. Og væru uppgjör þeirra við líf í sömu fjölskyldu eins mismunandi og þau væru mörg. Ekki síst ef foreldrar væru vansælir með líf sitt. Hefðu ætlað sér annarskonar líf , en kynhvötin sett þau áform út. Það uppgjör væri auðvitað frá þeirra eigin reynslu og sjónarhorni og hvað af þeim mismunandi tilfinninga-skammti frá foreldrum, hvert þeirra hafði fengið án vitna. Hvort einhverjir aðrir vitnuðu reynslu hvers annars af foreldrum sínum, eða ekki. Sama ætti við um þau sem hafi lifað af stríð og eyðileggingu eins og við erum að vitna í dag á Gaza og Ukrainu með öllum öðrum slysum og glæpum. Hvernig sögu myndu þau skrifa? Svo eru það afgreiðslur fortíðar frá stórbrunum eins og í Kaliforníu núna, og skógarbrunum hér í Ástralíu. Hver mannvera myndi gera það upp á sinn persónulega hátt. Hvað lærðist, og hvernig annað var unnið. Síðan eru það einstaklingar sem sjá enga von lengur og enda líf sitt. Geta ekki gert upp og haldið áfram. Ekki allir í þeim kringumstæðum tjá sig um það. Sem væri af því að þau treysta ekki samfélaginu fyrir sínu máli, og vilja enga afskiptasemi. En þau sem virkilega vilja lifa áfram ná að leita sér hjálpar, ef þau vita að sú rétta sé til staðar. Þá er það saga fortíðar annarra sem voru í lífi þeirra sem ákváðu að nóg væri komið fyrir þau af lífi á þessari jörðu. Tjáning um alla þessa reynslu, hver sem hún var, er lykillinn að þeirri heilun sem möguleg er og léttir á magni mengaðra taugakerfa. Sögur allra þessara einstaklinga, ef þau myndu skrifa þær. Væru merkileg lestrarefni. Það væri ljúft ef leiðtogar þjóða myndu sjá um að það efni væri lesið. Og að þeir notuðu það sem lært væri frá þeim skrifum, til að bæta hvernig þeir leiði þjóðir og noti skattpeninga hennar. Svo ráðum við ekki endilega því sem heilabúið ákveður að fari eða geymist. Ég gæti sagt langa sögu um það. Það gætu líka milljónir einstaklinga ef þeir gefa því gaum. Vanræksla á heilaörvun barna getur rænt það ótal þúsundum daga af atvikum sem voru í kring um þau, en sá staður hið innra hafði ekki fengið opnun vegna vanrækslu. Dæmi um veruleika sem enginn skilningur né tjáning var til um þá Það að líkami minn var tekinn til annarra landa sem barns, tveim árum eftir að sú sem setti mig í heiminn hafði skilið mig eftir á Íslandi. Ákvörðun vegna atriða sem voru of erfið þá til að taka mig með. Líkami minn var svo í fjögur ár í öðrum löndum. En heilabúið endaði með minna en eins klukkutíma magns atriða í geymslu í heilanum. Sérkennileg hugsun frá þeim þúsundum daga frá rúmlega tveggja ára aldri til sjö ára aldurs og áfram. Það að vita að maður var þarna, er ekki sama dæmi, og að hafa atriðin ofin í heilanum frá nægum tjáskiptum. Sálfræðingur hér sagði mér að þá væri engin tenging við konuna sem fæddi barnið. Ég var háð þeim, en ekki tilfinningalega tengd. Hvernig uppgjör væri og verður svo frá þolendum langtíma kynferðis- misnotkunar, eins og stelpunnar sem faðirinn skrifaði um, og var á Dagblaðinu. Svo hin sorglega uppgjöf Ólafar Töru baráttu manneskju sem gerði svo mikið gott en hin mengaða orka fortíðar hafði því miður verið meiri en hægt var að lifa við. Planið sem við komum frá sem sálir þarna úti. Virðist svo sjá um að það sem helst djúpt í líkamanum séu frá kjarna verðgildum mannverunnar. Það er upplifun mín núna í ellinni. Svo að sögur ótal einstaklinga með svipaða reynslu af því tagi, og svo þau sem hafa allskonar aðra viðfeðma reynslu og leyfar af í kerfunum, væru dýrmæt fræði fyrir mannkyn að stoppa og hugsa um í þeim tilgangi að skapa betri heim. Frá því að læra hvað virkar ekki vel í tjáskiptum. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Ástralíu um langt skeið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Halldór 21.03.2026 Halldór Reykjavík er Eiður Smári árið 1998 Bjarni Guðjónsson Skoðun Kveikjum neistann í Lindaskóla Margrét Ármann,Nanna Þóra Jónsdóttir Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun Fátækt – í boði stjórnvalda með samþykki verkalýðsforustu Vilhelm Jónsson Skoðun Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Lausnir vegna lélegra loftgæða í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee Skoðun Skoðun Skoðun Fátækt – í boði stjórnvalda með samþykki verkalýðsforustu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Lausnir vegna lélegra loftgæða í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Reykjavík er Eiður Smári árið 1998 Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Kveikjum neistann í Lindaskóla Margrét Ármann,Nanna Þóra Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á byrjuninni – Framboð, ekki bara fjármögnun Hilmar Halldórsson skrifar Skoðun Enn ein hringekja vegatollaumræðu Runólfur Ólafsson skrifar Skoðun Hlaðborð gæluverkefna Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Vanfjármögnun leikskólanna er ekki valkostur James Robb skrifar Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason skrifar Skoðun Hundseðlið sem heldur Íslandi niðri Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Jysk, veikindaréttur opinberra starfsmanna, Emmsjé Gauti og forréttindablinda Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Nálaraugað rammaáætlun og markaðsskrifstofa frá 1997 Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson skrifar Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Launin mín eru ekki vandamálið. Hættu að kenna fátækum um mistök þín Ian McDonald skrifar Skoðun Öfugir hvatar hlutdeildarlána Sindri Pálmason skrifar Skoðun Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Elliði Vignisson skrifar Skoðun Er háskólamenntun trygging fyrir húsnæðisöryggi? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Afsal fullveldis – eða ekki. Er það einhver spurning? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra eflir endó-meðferð Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hækkun örorkubóta eða raunverulegur stuðningur? Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Léttum á vegunum og eflum strandsiglingar Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þáttaskil í umræðu um blóðmerahald Árni Stefán Árnason skrifar Sjá meira
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir Skoðun
Skoðun Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir skrifar
Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason skrifar
Skoðun Jysk, veikindaréttur opinberra starfsmanna, Emmsjé Gauti og forréttindablinda Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Nálaraugað rammaáætlun og markaðsskrifstofa frá 1997 Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson skrifar
Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir Skoðun