Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar 14. júní 2026 08:03 Ég þarf aðeins að fara yfir náttúru-ástarmálin. Ég deildi broti úr viðtali af Græna borðinu sem sótti á mig og fékk mig til að hugsa um hlutverk okkar í menntun og upplýsingu um náttúru og ástand plánetunnar. Ástæðan fyrir því að ég miðlaði ummælum orkuráðherra var að hann var spurður um ást á náttúru og viðbrögð hans urðu mér meira umhugsunarefni en innihaldið. Sjálf hef ég setið löngum stundum á jökulsorfnum klöppunum í Laugarásnum í Reykjavík, klappað þeim og hugsað minn gang. Auk þess hef ég miklar mætur á Biskupstungum, á þar ættarrætur og unaðsreit í Bláskógabyggð. Og þar í sveitum standa aldeilis spjótin á náttúru - ekki síst frá ferðaþjónustu sem heimtar sína risaskammta. Baðlónabólan er hlaupabóla og gistirýma-skortsóttinn útbreiddur kvíðasjúkdómur og dýrmæt votlendissvæði eru á veisluborðum. Nei, það voru ekki staðirnir sem ráðherrann nefndi sem vöktu mér ugg ... heldur tónninn, fasið og áhugaleysið, skeytingaleysið. Þetta viðmót sem náttúruverndarar hafa mætt hjá viðkomandi ráðherra frá því að hann tók við embætti og mættu svo sem áður hjá forvera hans en sá var ekki jafn vinnusamur svo það kom varla að sök. Lögin löguð og aðlöguð Frá ráðherranum kemur hvorki samtal um náttúruvernd né við náttúruvernd - en um leið er í gangi náið samstarf og reglulegir vinnufundir með hagsmunaaðilum í orkugeiranum, jafnt í einka sem almenningseigu. Frá ráðherranum kemur líka krafa um einföldun regluverka svo hrinda megi risaframkvæmdum hraðar af stað. Og frá honum koma lagabreytingar til að draga stórlega úr lögformlegum kæruferlum, draga úr áhrifum samfélags á umhverfi. Lögin eru löguð að þörfum orkufyrirtækjanna svo þau sigri málaferlin fyrirfram. Þau eru líka aðlöguð að þörfum einkafyrirtækja góðvina. Neitunarvald landeigenda er afnumið og regluverkin öll einfölduð til að greiða leiðirnar að auðlindum þjóðar og náttúru komandi kynslóða. Það sjá allir að þessir málaflokkar fara alls ekki saman. Og það sáu þeir stjórnarherrar sem stofnuðu umhverfisráðuneytið árið 1990. Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra og fyrsti umhverfisráðherrann var Júlíus Sólnes. Gegn misnotkun og spillingu Júlíus rifjaði í vetur upp við Græna borðið að það hefði verið stórt leiðarljós við stofnun þessa ráðuneytis að það yrði að vera algjörlega sjálfstætt frá iðnaðar- og orkuráðuneyti. Þá þegar voru menn mjög meðvitaðir um að þessir málaflokkar væru andstæðir pólar og að þarna yrði að vera stórt lýðræðissamtal á milli en ekki einræði og eintal sálar. Það var gert til að draga úr líkum á spillingu og misnotkun valds. Þá skrifuðu ráðamenn niður hjá sér að þetta glænýja umhverfisráðuneyti mætti alls ekki vera á hendi sama stjórnmálaflokks og iðnaðar- og orkuráðuneyti - það gæfi auga leið. Og svo leið tíminn og tveimur árum síðar fæddist núverandi umhverfisráðherra. Og áfram leið tíminn. Þrýstingur hagsmunahópa Það var svo 2017-2021 sem VG hélt á ráðuneyti umhverfismála. Mummi var ráðherra og hagsmunaslagurinn varð glerharður um ótal málefni enda í gangi hratt vaxandi ásókn í náttúruauðlindir. Sjálfstæðisflokkurinn vann ötullega fyrir sína hefðbundnu hagsmunahópana og þrýstingurinn jókst. Bláa lónið þurfti þjóðlendur, einkageirinn varð að komast í orkuinnviði, til dæmis fyrir vatnsorku og vindorku. Sveitarfélögin neituðu að láta af hendi hálendið til þjóðarinnar vegna annarra hagsmunahópa og mun meira gekk á í ráðuneyti umhverfismála en þjóðin fékk að vita. Svo rann upp seinna kjörtímabil ríkisstjórnar Bjarna og Katrínar. Sjálfstæðisflokkur með stuðningi Framsóknar krafðist þess að fá ráðuneyti umhverfismála til þess að pakka því niður hjá orku- og iðnaðarráðuneyti. Það var að sjálfsögðu með vilja gert til að veikja rödd umhverfis- og náttúru, til að stöðva samtalið á milli ráðuneyta og greiða leiðir orkufyrirtækja að innviðum og auðlindum. Þessi gjörningur varð banamein VG. Kjósendur svöruðu fyrir sig. Við ráðuneytinu tók svo ráðherra sem gekk ekki mikið undan, auk þess sem mótstaða var fyrir hendi við ríkisstjórnarborðið frá VG svo skaðinn varð minni en ella á því kjörtímabili. Eldjökulgömul hugmyndafræði En svo tók núverandi ríkisstjórn við og í stað þess að leiðrétta þennan ofbeldisgjörning hagsmunagæslunnar og stofna aftur sjálfstætt umhverfis- loftslags og náttúrumálaráðuneyti með vísindi og framtíð að leiðarljósi þá tóku við nýir stjórnmálamenn með eldjökulgamla hagsmunapólitík. Þeir héldu sömu stefnu og íhaldið, en gáfu svo aldeilis í, og reka nú iðnaðar og efnahagsstefnu sem líkist mest hugmyndafræði sem tíðkaðist um miðja síðustu öld þegar fólk reykti í bönkum og sjónvarpið fór í sumarfrí. Trúin er ofsafengin á ótakmarkaðan vöxt. Stefnan er tekin á stjórnlausa orkuöflun erlendra einkafyrirtækja á móti gagnaverum eins og þau vilja og þurfa - og ekkert þak, engar hömlur, en náttúran er hlaðborð og nóg til frammi. Öllum markmiðum um velsældarhagkerfi var auk þess kastað í skjalageymslur þegar þessi ríkisstjórn tók við. Botninn og viðspyrnan Og hér stöndum við, allskonar fólk, og viljum samtal um náttúru við ráðherra sem er bara ráðherra orkumála. Við biðjum um samtal við yfirvaldið um vægð og vernd, samtal sem aldrei verður. Og við erum því miður ekki skapandi þjóð heldur oftast apandi og örlítil eftirlíking af stóru útlöndunum. Stefnan er alþjóðleg og hún er fáveldisstefna - ólígarkí kryddað pópúlisma sem almenningur bíður eftir líði hjá. Hvenær náum við botninum? spyrja svo margir. Ég heyri þessa spurningu um allt samfélag. Við hljótum að ná botninum að lokum og spyrna okkur upp sem samfélag á hjaranum, spyrna okkur upp sem manneskjur til móts við sjálfbærni og velsældarhagkerfi fyrir fjöldann og fyrir náttúru og plánetu. Við erum hluti af náttúru og lifum ekki af nema að við hægjum á vélum, finnum fyrir náttúru, verndum og endurheimtum lífríki og finnum leiðir til að lifa með vistkerfum af ást og virðingu, af þekkingu og skilningi. Við þurfum að þekkja válistana fyrir dýrin og plönturnar, listana sem lengjast svo hratt á milli ára. Börnin okkar þurfa að þekkja þessa lista og skilja og skynja mikilvægi þess að lífríki og vistkerfi lifi af. Og við þurfum ráðherra sem talar fyrir lífríki í fullri vinnu og af fullri alvöru. Þannig ráðherra þarf að stýra mikivægasta ráðuneyti allra ráðuneyta því umhverfismál hafa áhrif á alla aðra þætti stjórnsýslu og samfélags. Gíslingin Orkumálaráðherra talar af mikilli ástríðu og áfergju um alla sína gjörninga og virkar sem öflugur fagráðherra fyrir fólkið sitt í orkugeiranum. Ráðherrann talar um að höggva á hnúta og ryðja burtu hindrunum. Þar er hann að tala um náttúruvernd sem hnút og sem hindrun. Hann er líka að tala um heimafólk sem hefur aðra sýn. Það sér hver manneskja að þessir málaflokkar fara ekki saman. „Frumvarp sem lagt verður fram í haust mun gera það að verkum að einni helstu hindrun fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði í Árneshreppi verður rutt úr vegi, “ segir orkumálaráðherra. Á bak við hann liggur meðvitundarlítill náttúrumálaráðherra, keflaður og handjárnaður. Umhverfisráðuneytið er í gíslingu. Jájájá, dæsti ráðherra í lok myndbrotsins sem ég deildi. Það var mæðutónn í röddinni, fálæti, tómlæti, eins og þegar einhverjum er farið að leiðast samtalið, finnst það ómerkilegt og um ekki neitt. Og harmurinn stóri er svo að í rökkrinu á hliðarlínu stendur stjórnarandstaðan að stærstum hluta með grjóthörðustu gróðaplönin í lúkunum fyrir hönd hagsmunahópanna. Sorgin Samfylkingin dalar djúpt í skoðanakönnunum, ekki síst vegna þess að hún er að yfirgefa náttúruverndarfólkið sitt. Og hún er auðvitað líka að yfirgefa mannverndarstefnuna. Það væri risastórt skref inn í nútímann að aðskilja ráðuneyti umhverfis og orkumála og vinda ofan af nýlegum yfirgangi íhaldsins. Það væri líka gott fyrir laskaða ímynd. Í því byggi hugrekki og lærdómur að aðskilja þessi ráðuneyti, virða stofnsáttmála umhverfisráðuneytisins og leiðrétta mistök Bjarna, Katrínar og Guðlaugs. Það væri risastórt skref. Það er alltaf svo stórt og fallegt að viðurkenna mistök. Stjórnmálamenn mættu alveg gera meira af því. Við þurfum að ræða náttúruna af áhuga og næmni og af skilningi og kærleika. Hún á það inni. Náttúran hefur aldrei þurft jafn sárlega á eigin ráðherra og ráðuneyti að halda og nú. Náttúran á ekki skjól hjá stjórnmálaflokkum á Alþingi í dag. Hún á ekki ráðuneyti og engan ráðherra. Það er samfélagsleg sorg á þeim umbrotatímum vistkerfa og lífríkja sem við lifum. Höfundur er rithöfundur og stjórnarmaður í Landvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun