Þegar „kerfið“ spilar vörn Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar 16. júní 2026 08:01 Réttindi eru ekki til í lífi einstaklings aðeins vegna þess að þau eru í lögum eða reglum. Þau geta verið skrifuð í fallegum setningum og samþykkt með hátíðlegu atkvæði þingmanns. Samt geta þau legið óhreyfð, eins og lykill að dyrum sem enginn sýnir manni hvar eru. Þess vegna skiptir réttindagæsla fatlaðs fólks svo miklu máli. Réttindagæsla fyrir fatlað fólk er ekki venjulegt stjórnsýsluverkefni. Hún er ekki skrifstofa, nefnd eða liður í frumvarpi. Hún er brú milli fatlaðs einstaklings og kerfisins. Hún á að leiða fólk inn í mál, skýra rétt þess, hjálpa því að skilja ákvarðanir og kæruleiðir, og standa með því þegar kerfið verður of stórt, fjarlægt eða sjálfsöruggt. Þetta er kjarninn. Fatlað fólk þarf ekki aðeins réttindi á pappír. Það þarf að geta notað þau. Þingmenn vita ekki allt. Það er eðlilegt að þeir treysti embættismönnum og sérfræðingum til að útskýra flókin mál. En traust er ekki hið sama og skilningur og þar hefst vandinn. Í málaflokki fatlaðs fólks er of oft fjallað um fatlað fólk af kerfinu, en ekki þekkingu frá fólkinu sjálfu. Í þessu birtist þekkingarleysi á stöðu fatlaðs fólks, skilningsleysi á réttindum þess og getuleysi kerfisins til að setja sig í stöðu fólksins sjálfs. Menn kunna skil á ferlum, fjárheimildum og stofnanamörkum, en þekkja ekki alltaf óttann við bréfið frá yfirvaldinu, þreytuna af baráttunni eða vanmáttinn þegar réttur er til í orði en hverfur í framkvæmd. Embættismaðurinn kemur sjaldnast tómhentur. Hann kemur með gögn, minnisblöð og upplýsingar frá öðrum sérfræðingum, og oft er sú vinna vönduð. En stjórnsýslan hefur sín eigin viðmið og spyr gjarnan fyrst, hvað kostar þetta? Hvar á verkefnið að liggja? Hvað raskar minnst núverandi stöðu? Hvað fellur best að vilja ráðherrans? Of sjaldan er fyrsta spurningin þessi, hvað vill fatlaði einstaklingurinn sjálfur? Hvað þarf hann og hvernig verður rétturinn raunverulegur í lífi hans en ekki aðeins til í orði kveðnu? Ég þekki þetta, því ég var þessi embættismaður. Ég hef séð hvernig manneskja verður að málaflokki, reynsla að fylgiskjali og lifandi þörf að kostnaðarmati. Það gerist ekki alltaf af illvilja. Oft gerist það einfaldlega vegna þess að kerfið hefur lært að hlusta fyrst á sjálft sig. Þess vegna verður réttindagæsla að vera sjálfstæð, aðgengileg og skýr. Hún á ekki að vera skraut á stjórnsýslunni heldur mótvægi við hana. Hún á að minna ríkið á að fatlaður einstaklingur er ekki verkefni, heldur borgari með vilja, rödd og rétt. Í því ljósi sem nú á að ákveða um á hinu háa Alþingi, vakna alvarlegar spurningar þegar Mannréttindastofnun Íslands á bæði að sinna réttindagæslu og hafa eftirlit með mannréttindaskuldbindingum á sama sviði. Þá þarf að vera hafið yfir vafa hvar framkvæmdin endar og óháða eftirlitið byrjar. Annars getur skapast hlutverkaárekstur, eða sú ásýnd að stofnunin hafi eftirlit með verkefni sem hún sjálf sinnir. Þá verður ábyrgðin líka óljós. Ráðherra ber ábyrgð á lögunum, en virðist ekki endilega hafa beina ábyrgð á eftirlitinu. Stofnunin vísar til hlutverks síns, ráðuneytið til sjálfstæðis hennar og kerfið til ferlanna. En hvert á fatlaður einstaklingur að leita ef réttindagæslan bregst eða hann fær ekki þá vernd sem honum var lofað? Hver svarar honum? Hver á ábyrgðina? Réttindavernd má ekki verða hús með mörgum dyrum þar sem manneskjan er send milli herbergja þar til hún hættir að banka. Þess vegna eiga þingmenn ekki aðeins að spyrja embættismenn. Þeir eiga að spyrja fatlað fólk sjálft. Ekki eftir á, heldur áður. Ekki til málamynda, heldur til að skilja. Réttindi sem enginn leiðir þig að geta orðið einskis virði. Og samfélag sem setur réttindi fatlaðs fólks í lög en gleymir að spyrja fatlað fólk hvað það þarf, hefur ekki skilið réttindin. Það hefur aðeins lært orðalagið. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun