Öruggt að hann væri ekki á lífi væri flugvöllurinn annars staðar Lovísa Arnardóttir skrifar 12. febrúar 2025 22:56 Björn með barnabarni sínu, Viktori Birni. Aðsend Björn Sigurður Jónsson sauðfjárbóndi hefur þrisvar sinnum á síðustu sjö árum þurft að fara í sjúkraflug og segir það alveg á hreinu að hann væri ekki lengur á lífi væri Reykjavíkurflugvöllur lengra frá spítalanum. Björn liggur inni á Landspítalanum eins og stendur vegna veikinda eftir að hafa verið flogið í skyndi til Svíþjóðar í bráðaaðgerð fyrr á árinu. Björn skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gær um málið sem hefur vakið mikla athygli. „
Ég fór af stað með þessa færslu því ég var að horfa á fréttirnar og fannst fáránlegt hvernig þetta var hugsað. Að þessar aðgerðir þyrftu að fara í eitthvað ógurlegt mat og að enn ein nefndin þyrfti að hugsa hvernig væri hægt að bregðast við,“ segir Björn í samtali við fréttastofu. Þá á hann við þá umræðu sem hefur verið í gangi síðustu daga í tengslum við lokun annarrar flugbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli. Flugbrautinni var lokað af öryggisástæðum vegna trjáa sem eru of há. „Hvert erum við komin með þetta. Er það raunveruleikinn að við getum rifist yfir einhverjum trjám sem hægt væri að planta niður annars staðar eða græða upp? Við höfum bara örlítið land fyrir flugvöll til að þjónusta farþega sem koma bráðveikir og þá sem þurfa að fara annað í aðgerð.“ Hann segir alveg galið að sjúkraflutningar séu ekki tryggðir og telur nauðsynlegt að öryggi sjúklinga sé tryggt. Það verði aðeins gert með frekari uppbyggingu á flugvellinum þar sem hann er núna og með því að taka niður þau tré sem þarf að skera niður svo hægt sé að hafa báðar flugbrautir opnar. „Mér finnst þetta orðið dálítið lúið og varð hugsað til Gunnars Mýrdal eftir þetta. Mér fannst ég hafa svikið hann að hafa ekki beitt mér fyrir þessu,“ segir Björn og á þá við lækninn sem tók við honum eftir fyrsta sjúkraflugið hans 2016. Björn er varaformaður Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveit.Aðsend Björn skrifaði langa færslu um veikindi sín og flugvöllinn á Facebook-síðu sína í gær. „Sælir vinir mig langar að segja mína hlið að því að vera í lífshættu. Árið 2016 dett ég í vinnunni minni og fell á brjóstið úr mikilli hæð en það dregur úr sársauka eftir dálítinn tíma og ég var viss að ég væri bara rifbeinsbrotinn og af reynslu vissi ég lítið væri hægt að gera í þeim málum. Ég var verkjaður næstu daga og taldi það enn vera bara rifbeinsbrotið en þegar ég er úti á hlaði heima hjá mér, finn ég þennan hræðilega verk fyrir brjósti og get rétt gert Camillu konu minni ljóst að það þurfi að hringja í neyðarlínuna. Þarna dett ég út og man ekki eftir mér fyrr en eftir aðgerðina sem var gerð á mér á Landsspítalanum. Þegar ég dett niður heima hjá mér að þá eru það lögregla, sjúkraflutningamenn og læknar sem komu mér í sjúkraflug með hraði til Reykjavíkur á sjúkrahús allra landsmanna Landspítalann,“ segir Björn í færslu sinni. Hann hafi á spítalanum fengið að heyra það frá lækninum sínum, Gunnari Mýrdal, að þetta hafi staðið tæpt. Hefði hann verið tveimur mínútum seinni á ferðinni hefði það verið of seint. Aftur sendur með sjúkraflugi „Hann bætir því við, að það er öruggt ef Reykjavíkurflugvöllur hefði ekki verið væri ég ekki heldur lifandi og bað mig að hugsa vel um flugvöllinn okkar og hvað hann skipti miklu máli. Ég lofaði bera hann fyrir brjósti og verja þegar á væri ráðist. Ég hef ekki staðið mig nærri nógu vel í því en vil reyna að bæta það,“ segir Björn í færslunni. Eftir þetta hafi honum verið tjáð að hann þyrfti að fara í aðra aðgerð en það yrði einhver bið. Það lægi samt sem áður fyrir að hann myndi þurfa að fara með sjúkraflugi. „Sem betur fer náði Gunnar Mýrdal og teymi hans að gera við þennan leka með opni skurðaðgerð sem átti sér stað í mars 2018. Svo er það núna í janúar í ár ég er á leið heim einn morgun að ég finn að nú er eitthvað að gerast með kallinn, ég kalla á Camillu og segi að hún verði víst að koma mér upp á sjúkrahús og stutta saga er að við förum með sjúkraflugi frá Sauðárkrók upp á gjörgæslu á Landspítalanum,“ segir Björn og var þá í sínu þriðja sjúkraflugi. Björn í sveitinni.Aðsend Hann segir alveg ljóst, í öllum þremur tilfellum, hafi nálægð spítalans við flugvöllinn skipt lykilmáli. „Það er alveg ljóst að fólk á ekki að vera gera lítið úr þeim staðreyndum að þegar bráðatilfelli koma upp að þá skiptir lífsmáli að vegalengd á milli sjúkrahúss og flugvallar séu sem styðst. Þeir sem halda öðru fram bera ekki virðingu fyrir lífi þeirra sem berjast fyrir lífi sínu þegar bráðatilfelli koma upp. Tíminn skiptir máli og oft það eina sem getur bjargað mannslífum er að komast á sjúkrahúsið á sem stystum tíma,“ segir Björn. Flogið með hraði til Svíþjóðar Björn segir einnig frá því í færslunni að eftir að hann var kominn á Landspítalann komi í ljós að hann þurfi að fara í bráðaaðgerð í Svíþjóð. Honum hafi verið flogið þangað í aðgerð sem tók um tólf tíma og svo komið aftur heim. Það sama hafi gilt þá. „Enn og aftur skipti sköpum að Reykjavíkurflugvöllur væri stutt frá Landsspítalanum, því læknarnir töldu mig ekki lifa það af að vera fluttan í sjúkrabíl frá Landsspítalanum til Keflavíkurflugvallar, ástandið var það alvarlegt. Ég á þessu frábæra fólki lífið að launa,“ segir Björn í færslu sinni. Björn við störf í björgunarsveitinni.Aðsend Umræðan alltaf sú sama Björn segir umræðuna aldrei taka neinum breytingum og það sé aldrei neinn með lausn á því hvar eigi að koma flugvellinum upp í staðinn. Á sama tíma sé aðstaðan á Reykjavíkurflugvelli ekki bætt eða byggð upp. „Það þarf að hefja uppbyggingu á þessu svæði. Þó það sé bara fyrir sjúkrahúsið. Önnur flugumferð getur svo sem farið til Keflavíkur en þetta verður að vera við dyr sjúkrahússins. Það kemur ekkert annað til greina,“ segir hann að lokum.
Reykjavíkurflugvöllur Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Heilbrigðismál Samgöngur Tré Umferðaröryggi Fréttir af flugi Tengdar fréttir Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Kári Kristján Kristjánsson, línumaður ÍBV og fyrrverandi landsliðsmaður, gæti hafa spilað sinn síðasta leik á þessu tímabili eftir að hafa lent í alvarlegum veikindum. Hann var orðinn fárveikur í lokaþætti HM-stofunnar á RÚV, fyrir tíu dögum síðan, og þarf nú að taka því rólega eftir að hafa meðal annars farið í hjartaþræðingu. 12. febrúar 2025 14:28 Krefja borgina um tafarlaus viðbrögð Sveitarstjórn Norðurþings hefur gefið út yfirlýsingu þar sem tekið er undir kröfu miðstöðvar sjúkraflugs um að Reykjavík tryggi opnun flugbrauta 13 og 31 með eins tafarlausum hætti og mögulegt er. Aðgengi að Reykjavíkurflugvelli sé lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins. 9. febrúar 2025 18:09 Ekki boðlegt að tré storki örlögum fólks á landsbyggðinni Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða, kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og flýti fyrir framkvæmdum í Öskjuhlíð svo hægt sé að tryggja sjúkraflug á flugvellinum. Mannslíf séu verðmætari en tré. 9. febrúar 2025 13:00 Mest lesið Svekktar og reiðar yfir viðbrögðum veitingamannsins Innlent Segist draga andann vegna staðsetningar flugvallarins Innlent „Við vitum að þessu er stjórnað af Áslaugu Örnu“ Innlent Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Erlent Sveifluðust til og frá í krefjandi lendingum Innlent Tólf særðir eftir að handsprengju var kastað í Grenoble Erlent Vill auka eftirlit með þungaflutningum Innlent Fimm með réttarstöðu sakbornings vegna andláts í Grindavík Innlent Líklegast að gos hefjist í seinni hluta febrúar Innlent Húsbrot, þjófnaðir og slagsmál Innlent Fleiri fréttir „Við vitum að þessu er stjórnað af Áslaugu Örnu“ Samgöngustofa hafnar beiðni Norlandair um undanþágu frá lokun Húsbrot, þjófnaðir og slagsmál Vill auka eftirlit með þungaflutningum Líklegast að gos hefjist í seinni hluta febrúar Svekktar og reiðar yfir viðbrögðum veitingamannsins Segist draga andann vegna staðsetningar flugvallarins Sveifluðust til og frá í krefjandi lendingum Fimm með réttarstöðu sakbornings vegna andláts í Grindavík Kennarar funda með sáttasemjara á morgun Orðræða kolleganna um slitin geri lítið úr Framsóknarkonum Ekkert rætt um borgarstjóra sem verður „vonandi kona“ „Kryddpíur“ með gæsahúð, krefjandi lending og hraðstefnumót Fróm fyrirheit í jómfrúarræðuhlaðborði „Höfum verið máluð upp eins og vesenisfólk“ Dómur Félagsdóms hafi engin áhrif á framhaldsskóladeiluna „Það er ekkert ólíklegt að þessi Sundhnúkssyrpa sé að koma að endalokum“ „Kryddpíur“ í formlegt samtal Sé Alfreð sakhæfur eigi að horfa til tuttugu ára eða ævilangs fangelsis Viðhaldsskuld upp á 680 milljarða króna Ráðherra braut ekki lög Sérkennilegt að vera útilokuð vegna mála sem komi borginni ekki við Hefur lagt fram frumvarp og ætlar að eyða óvissunni Framhaldsskólakennarar funda hjá sáttasemjara Bjóða Birki Jón velkominn til starfa Fundað um launakjör í Karphúsi og meirihlutamyndun í borginni Hættustig á Vesturlandi vegna bikblæðinga „Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk“ Gullafólk, þingmenn og kanónur klöppuðu upp Guðrúnu Kveðst hafa komið að hjónunum látnum Sjá meira
Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Kári Kristján Kristjánsson, línumaður ÍBV og fyrrverandi landsliðsmaður, gæti hafa spilað sinn síðasta leik á þessu tímabili eftir að hafa lent í alvarlegum veikindum. Hann var orðinn fárveikur í lokaþætti HM-stofunnar á RÚV, fyrir tíu dögum síðan, og þarf nú að taka því rólega eftir að hafa meðal annars farið í hjartaþræðingu. 12. febrúar 2025 14:28
Krefja borgina um tafarlaus viðbrögð Sveitarstjórn Norðurþings hefur gefið út yfirlýsingu þar sem tekið er undir kröfu miðstöðvar sjúkraflugs um að Reykjavík tryggi opnun flugbrauta 13 og 31 með eins tafarlausum hætti og mögulegt er. Aðgengi að Reykjavíkurflugvelli sé lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins. 9. febrúar 2025 18:09
Ekki boðlegt að tré storki örlögum fólks á landsbyggðinni Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða, kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og flýti fyrir framkvæmdum í Öskjuhlíð svo hægt sé að tryggja sjúkraflug á flugvellinum. Mannslíf séu verðmætari en tré. 9. febrúar 2025 13:00