Lífið

Breytti lúxusíbúð frá 1985 í Efsta­leitinu í risa­stóra lúxusvítu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þormóður fékk aðstoð frá Rut Káradóttur við hönnun íbúðarinnar.
Þormóður fékk aðstoð frá Rut Káradóttur við hönnun íbúðarinnar.

Í síðasta þætti af Heimsókn leit Sindri Sindrason við hjá Þormóði Jónssyni í íbúð hans í Efstaleitinu í Reykjavík.

Húsið er þekkt í borginni og var það byggt árið 1985 og hannað af Ingimundi Sveinssyni sem hannaði meðal Perluna á sínum tíma.

Blokkin er heldur betur óhefðbundin og má meðal annars finna heita potta, sundlaug, nuddstofu og íþróttasal í byggingunni.

Þau hjónin Þormóður og Sigríður Garðarsdóttir vildu minnka við sig og selja falleg einbýlishús við Sunnuflöt í Garðabæ þar sem þau bjuggu síðan 1996. Sigríður, sem var alltaf kölluð Sirrý, barðist aftur á móti við krabbamein frá árinu 2018 og lést í ágúst árið 2023. Því kláraði Þormóður verkið í Efstaleitinu og er í dag kominn með kærustu.

Hann og Sirrý voru gift í tæplega þrjátíu og eignuðust saman fjögur börn. Þegar Þormóður fjárfesti í eigninni voru allar innréttingar upprunalegar. Allt mjög vel gert en stóðst ekki lengur tímans tönn eins og hann orðar það sjálfur.

Rut Káradóttir hannaði íbúðina sem má segja að hún sé í dag risastór hótelsvíta en hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti af Heimsókn sem er á dagskrá á Stöð 2 á miðvikudagskvöldum.

Klippa: Breytti lúxusíbúð frá 1985 í Efstaleitinu í risastóra lúxusvítu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.