Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. febrúar 2025 20:59 Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson voru endurkjörin sem formaður og varaformaður. Þau hafa leitt flokkinn síðustu ár. Flokkur fólksins vill breyta Landsbankanum í samfélagsbanka, efla strandveiðikerfið og lögfesta skyldu til íslenskukennslu fyrir börn og fullorðna sem flytja til landsins. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun Flokks fólksins sem var samþykkt á landsfundi flokksins á Grand Hotel í Reykjavík í dag. Landsfundurinn var fyrsti landsfundur flokksins frá árinu 2019. Til stóð að halda fundinn síðastliðinn nóvember en honum var svo frestað eftir að boðað var til Alþingiskosninga. Á fundinum var samþykkt að breyta skráningu flokksins hjá skattinum úr félagasamtökum í stjórnmálasamtök, sem er lagaskilyrði fyrir því að flokkar geti þegið styrki ætlaða stjórnmálasamtökum úr ríkissjóði. Þá var stjórnmálaályktun flokksins í sautján liðum samþykkt af fundargestum. Bann við verðtryggðum lánum og samfélagsbanki Fyrsti liður fjallaði um kjarnann í stefnu flokksins sem yrði hafður að leiðarljósi við allar stefnumarkandi ákvarðarnir. Kjarninn væri „Baráttan gegn fátækt og fyrir hagsmunum þeirra sem minnst bera úr býtum.“ Annar liðurinn var einna áhugaverðastur og fjallaði um hve nauðsynlegt væri að ná stjórn á fjármálum ríkisins til að skapa skilyrði fyrir áframhaldandi lækkun vaxta. Flokkurinn ætlaði þar að beita sér fyrir því að tekið yrði upp nýtt húsnæðislánakerfi sem tryggi óverðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum til lengri tíma og að samhliða því yrðu verðtryggð lán til neytenda bönnuð. Að lokum sagði að stefnt yrði að því að Landsbankanum yrði breytt í samfélagsbanka. Þá sagðist flokkurinn í þriðja lið leggja höfuðáherslu á að allir hefðu þak yfir höfuðið og nauðsynlegt væri að brjóta nýtt land og ráðast í aukna uppbyggingu á húsnæði til að vinna gegn sífellt hækkandi húsnæðisverði. Börn, aldraðir og innflytjendur Einnig sagði að bæta þyrfti grunnframfærslu tekjulágra lífeyrisþega, draga úr skerðingum aldraðra, efla heimaþjónustu og heimahjúkrun, tryggja dagdvöl og fjölga hjúkrunarrýmum. Einnig myndi flokkurinn beita sér fyrir því að ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra yrði virtur á öllum stjórnstigum. Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson voru endurkjörin í embætti formanns og varaformanns. Stytta þyrfti biðlista barna eftir greiningum og meðferð, auka aðgengi fólks að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Einnig þyrfti að byggja fleiri hjúkrunarheimili og mennta fleira fólk til heilbrigðisstarfa. Þá segir flokkurinn að auka þurfi aðstoð við nemendur með sérþarfir og fjölga kennurum. Flokkurinn hyggst gera kennslu að eftirsóknarverðu starfi með því að bæta starfsskilyrði kennara. Einnig þurfi að endurskoða kennsluaðferðir til að efla lestrargetu barna og ungmenna á öllum skólastigum. Ætlar flokkurinn að leggja áherslu á þróun og innleiðingu verkefnisins „Kveikjum Neistann“ í fleiri grunnskóla en það hefur verið nýtt í Vestmannaeyjum. Flokkurinn vill líka aðlaga íslenska löggjöf um alþjóðlega vernd að löggjöf hinna Norðurlandanna og efla landamæraeftirlit. Efla þurfi íslenskukennslu innflytjenda til mikilla muna til að koma í veg fyrir einangrun þeirra og auka möguleika þeirra til að aðlagast íslensku samfélagi. Lögfesta þyrfti skyldu til íslenskukennslu fyrir börn og fullorðna sem flytja til landsins. Strandveiðar efldar og aukin orkuöflun Flokkurinn ætlar að stefna að því að tryggja jöfn búsetuskilyrði milli landshluta með greiðum aðgangi að opinberri þjónustu, með bættum samgöngum, auknum strandveiðum og fjölbreyttara atvinnulífi. Stórefla þyrfti vegagerð, vinna upp viðhaldsskuld í vegakerfinu og fjárfesta í jarðgöngum. Kátir flokksfélagar á landsfundi. Þá var lögð sérstök áhersla á að efla strandveiðikerfið í einum lið ályktunarinnar. Jafna þyrfti leikreglurnar í fiskveiðikerfinu svo að stóru útgerðirnar hafi ekki óeðlilegt forskot, „til að mynda með því að aðskilja veiðar og vinnslu, með því að endurskoða reglur um tengsl eigenda með það að markmiði að 12% kvótaþakið verði raunverulega virt og einnig reglur um vigtun sjávarafla,“ sagði í þeim lið. Skoða þyrfti skattspor sjávarútvegsins, setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá og tryggja að fyrirtæki sem fái leyfi til fiskeldis í fjörðum landsins fullvinni afurðina hér á landi. Þá yrði ráðist í aðgerðir til að auka orkuöflun, styrkja flutningskerfi og bæta orkunýtingu þannig að stutt yrði við verðmætasköpun um allt land. Tryggja þyrfti forgang heimila og smærri fyrirtækja á raforku á sanngjörnu verði og að raforkuverð til heimila ráðist aldrei á uppboðsmarkaði. Einnig þyrfti að niðurgreiða raforku til garðyrkjubænda. Loks sagði að Flokkur fólksins væri friðarins flokkur og styddi eindregið aðild íslands að Nató. Stjórnmálaályktun landsfundar Lesa má stjórnmálaályktun sem var samþykkt á landsfundi Flokks fólksins í heild sinni hér að neðan: 1. Baráttan gegn fátækt og fyrir hagsmunum þeirra sem minnst bera úr býtum hefur verið og verður alltaf kjarninn í stefnu Flokks fólksins og leiðarljós við allar stefnumarkandi ákvarðanir. 2. Nauðsynlegt er að ná stjórn á fjármálum ríkisins til að skapa skilyrði fyrir áframhaldandi lækkun vaxta. Verðbólga og háir vextir hafa neikvæð áhrif á allt hagkerfið, setja fjárhag þúsunda heimila í uppnám og koma verst niður á þeim sem minnst hafa milli handanna. Flokkur fólksins beitir sér fyrir efnahagsstefnu sem tryggir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Flokkurinn beitir sér fyrir því að tekið verði upp nýtt húsnæðislánakerfi sem tryggi óverðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum til lengri tíma, á viðráðanlegum kjörum, og samhliða því verði verðtryggð lán til neytenda bönnuð. Þannig tryggjum við stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir heimilin. Stefnt skal að því að Landsbankanum verði breytt í samfélagsbanka. 3. Flokkur fólksins leggur höfuðáherslu á að allir hafi þak yfir höfuðið. Nauðsynlegt er að brjóta nýtt land og ráðast í aukna uppbyggingu á húsnæði til að vinna gegn sífellt hækkandi húsnæðisverði. Ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar ætlar að ráðast í bráðaaðgerðir til að fjölga íbúðum hratt og koma á kerfisbreytingum sem stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði. 4. Kjör öryrkja munu framvegis fylgja launavísitölu. En betur má ef duga skal. Bæta þarf grunnframfærslu tekjulágra lífeyrisþega til að tryggja sjálfstæði þeirra, afkomuöryggi og atvinnutækifæri. 5. Til að tryggja öldruðum áhyggjulaust ævikvöld þarf að auka réttindi aldraðra, draga úr skerðingum, efla heimaþjónustu og heimahjúkrun, tryggja dagdvöl og fjölga hjúkrunarrýmum. Vinna verður að samþættingu mismunandi þjónustustiga og setja viðmið um búsetuúrræði til að tryggja að þjónustuíbúðum fylgi raunveruleg þjónusta. 6. Ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra verði samþykktur á Alþingi. Flokkur fólksins mun beita sér fyrir því að ákvæði samningsins verði virt á öllum stjórnstigum um allt land. 7. Flokkur fólksins beitir sér fyrir ábyrgri meðferð á auðlindum þjóðarinnar og að sanngjarn hluti af arðinum af auðlindunum renni til fólksins í landinu. 8. Stytta verður biðlista barna eftir greiningum og meðferð, auka aðgengi fólks að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Einnig skal horfa til þess að fjármagna fjölbreytt úrræði, þannig að fólk geti fengið stuðning sem hentar þeirra þörfum. 9. Efla verður heilbrigðisþjónustu, ráða bót á fráflæðis- og mönnunarvanda Landspítalans og alls heilbrigðiskerfisins. Til þess verður að byggja fleiri hjúkrunarheimili og mennta fleira fólk til heilbrigðisstarfa og leita leiða til að kalla fólk aftur til starfa sem hefur horfið á braut, eða flutt til annarra landa. 10. Stefnt skal að því að tryggja jöfn búsetuskilyrði milli landshluta með greiðum aðgangi að opinberri þjónustu, eins og heilbrigðisþjónustu, með bættum samgöngum, auknum strandveiðum og fjölbreyttara atvinnulífi. Stórefla þarf vegagerð um land allt og endurskoða verklag og aðferðir. Vinna þarf upp viðhaldsskuld í vegakerfinu og fjárfesta í jarðgöngum. 11. Aðlaga þarf íslenska löggjöf um alþjóðlega vernd að löggjöf hinna Norðurlandanna og efla landamæraeftirlit. Efla þarf íslenskukennslu innflytjenda til mikilla muna til að koma í veg fyrir einangrun þeirra og auka möguleika þeirra til að aðlagast íslensku samfélagi. Lögfesta þarf skyldu til íslenskukennslu fyrir börn og fullorðna sem hingað flytja, til samræmis við það sem þekkist á Norðurlöndunum. 12. Efla þarf strandveiðikerfið, en þar er stefna ríkisstjórnarinnar um að tryggja 48 daga strandveiðar mikilvægt fyrsta skref. Jafnframt þarf að jafna leikreglurnar í fiskveiðikerfinu svo að stóru útgerðirnar hafi ekki óeðlilegt forskot, til að mynda með því að aðskilja veiðar og vinnslu, með því að endurskoða reglur um tengsl eigenda með það að markmiði að 12% kvótaþakið verði raunverulega virt og einnig reglur um vigtun sjávarafla. Skoða þarf skattspor sjávarútvegsins til að hægt sé að koma í veg fyrir skattasniðgöngu og undanskot. Setja þarf auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem tryggir að greiða þurfi fullt verð fyrir aðgang að auðlindum. Tryggja þarf að fyrirtæki sem fá leyfi til fiskeldis í fjörðum landsins fullvinni afurðina hér á landi. Auðlindagjöld eiga að standa undir innviðauppbyggingu. 13. Auka þarf aðstoð við nemendur með sérþarfir, og fjölga kennurum. Við viljum gera kennslu að eftirsóknarverðu starfi með því að bæta starfsskilyrði kennara. Tryggja þarf jafnt aðgengi allra barna að íþróttum, listum og frístundastarfi. 14. Efla verður lestrargetu barna og ungmenna á öllum skólastigum. Þetta kallar á endurskoðun á kennsluaðferðum. Flokkur fólksins leggur áherslu á þróun og innleiðingu verkefnisins Kveikjum Neistann í fleiri grunnskóla enda hefur verkefnið sýnt fram á miklar framfarir þar sem það hefur verið nýtt í Grunnskóla Vestmannaeyja. 15. Ráðast verður í aðgerðir til að auka orkuöflun, styrkja flutningskerfi og bæta orkunýtingu þannig að stutt verði við verðmætasköpun um allt land. Tryggja verður forgang heimila og smærri fyrirtækja á raforku á sanngjörnu verði og að raforkuverð til heimila ráðist aldrei á uppboðsmarkaði. Enda voru forsendur uppbyggingar raforkukerfisins að almenningur nyti hennar með sanngjörnu verði. Þá þarf að niðurgreiða raforku til garðyrkjubænda enda eflir það innlenda grænmetisrækt og lækkar verð á grænmeti til neytenda m.a. til þess að tryggja fæðuöryggi. 16. Flokkur fólksins er friðarins flokkur og hvar sem hann kemur fram, hvort heldur á alþjóðavettvangi eða hér heima þá munum við tala fyrir friði. 17. Flokkur fólksins styður eindregið aðild íslands að Nató og mun hér eftir sem hingað til berjast fyrir því að við verðum ávallt þjóð á meðal þjóða. Flokkur fólksins Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Mest lesið Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Innlent Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Við erum engir rasistar“ Innlent „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Innlent Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Fleiri fréttir Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Tíundi hver með ágætiseinkunn í MR Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Segir Viðskiptablaðið og Samstöðina fara rangt með mál um Ásthildi Lóu Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Tvenn mótmæli í Reykjavík og herþota á flugsýningu „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Missa fatamarkaðinn með flutningi Konukots í Ármúla „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Sjá meira
1. Baráttan gegn fátækt og fyrir hagsmunum þeirra sem minnst bera úr býtum hefur verið og verður alltaf kjarninn í stefnu Flokks fólksins og leiðarljós við allar stefnumarkandi ákvarðanir. 2. Nauðsynlegt er að ná stjórn á fjármálum ríkisins til að skapa skilyrði fyrir áframhaldandi lækkun vaxta. Verðbólga og háir vextir hafa neikvæð áhrif á allt hagkerfið, setja fjárhag þúsunda heimila í uppnám og koma verst niður á þeim sem minnst hafa milli handanna. Flokkur fólksins beitir sér fyrir efnahagsstefnu sem tryggir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Flokkurinn beitir sér fyrir því að tekið verði upp nýtt húsnæðislánakerfi sem tryggi óverðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum til lengri tíma, á viðráðanlegum kjörum, og samhliða því verði verðtryggð lán til neytenda bönnuð. Þannig tryggjum við stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir heimilin. Stefnt skal að því að Landsbankanum verði breytt í samfélagsbanka. 3. Flokkur fólksins leggur höfuðáherslu á að allir hafi þak yfir höfuðið. Nauðsynlegt er að brjóta nýtt land og ráðast í aukna uppbyggingu á húsnæði til að vinna gegn sífellt hækkandi húsnæðisverði. Ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar ætlar að ráðast í bráðaaðgerðir til að fjölga íbúðum hratt og koma á kerfisbreytingum sem stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði. 4. Kjör öryrkja munu framvegis fylgja launavísitölu. En betur má ef duga skal. Bæta þarf grunnframfærslu tekjulágra lífeyrisþega til að tryggja sjálfstæði þeirra, afkomuöryggi og atvinnutækifæri. 5. Til að tryggja öldruðum áhyggjulaust ævikvöld þarf að auka réttindi aldraðra, draga úr skerðingum, efla heimaþjónustu og heimahjúkrun, tryggja dagdvöl og fjölga hjúkrunarrýmum. Vinna verður að samþættingu mismunandi þjónustustiga og setja viðmið um búsetuúrræði til að tryggja að þjónustuíbúðum fylgi raunveruleg þjónusta. 6. Ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra verði samþykktur á Alþingi. Flokkur fólksins mun beita sér fyrir því að ákvæði samningsins verði virt á öllum stjórnstigum um allt land. 7. Flokkur fólksins beitir sér fyrir ábyrgri meðferð á auðlindum þjóðarinnar og að sanngjarn hluti af arðinum af auðlindunum renni til fólksins í landinu. 8. Stytta verður biðlista barna eftir greiningum og meðferð, auka aðgengi fólks að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Einnig skal horfa til þess að fjármagna fjölbreytt úrræði, þannig að fólk geti fengið stuðning sem hentar þeirra þörfum. 9. Efla verður heilbrigðisþjónustu, ráða bót á fráflæðis- og mönnunarvanda Landspítalans og alls heilbrigðiskerfisins. Til þess verður að byggja fleiri hjúkrunarheimili og mennta fleira fólk til heilbrigðisstarfa og leita leiða til að kalla fólk aftur til starfa sem hefur horfið á braut, eða flutt til annarra landa. 10. Stefnt skal að því að tryggja jöfn búsetuskilyrði milli landshluta með greiðum aðgangi að opinberri þjónustu, eins og heilbrigðisþjónustu, með bættum samgöngum, auknum strandveiðum og fjölbreyttara atvinnulífi. Stórefla þarf vegagerð um land allt og endurskoða verklag og aðferðir. Vinna þarf upp viðhaldsskuld í vegakerfinu og fjárfesta í jarðgöngum. 11. Aðlaga þarf íslenska löggjöf um alþjóðlega vernd að löggjöf hinna Norðurlandanna og efla landamæraeftirlit. Efla þarf íslenskukennslu innflytjenda til mikilla muna til að koma í veg fyrir einangrun þeirra og auka möguleika þeirra til að aðlagast íslensku samfélagi. Lögfesta þarf skyldu til íslenskukennslu fyrir börn og fullorðna sem hingað flytja, til samræmis við það sem þekkist á Norðurlöndunum. 12. Efla þarf strandveiðikerfið, en þar er stefna ríkisstjórnarinnar um að tryggja 48 daga strandveiðar mikilvægt fyrsta skref. Jafnframt þarf að jafna leikreglurnar í fiskveiðikerfinu svo að stóru útgerðirnar hafi ekki óeðlilegt forskot, til að mynda með því að aðskilja veiðar og vinnslu, með því að endurskoða reglur um tengsl eigenda með það að markmiði að 12% kvótaþakið verði raunverulega virt og einnig reglur um vigtun sjávarafla. Skoða þarf skattspor sjávarútvegsins til að hægt sé að koma í veg fyrir skattasniðgöngu og undanskot. Setja þarf auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem tryggir að greiða þurfi fullt verð fyrir aðgang að auðlindum. Tryggja þarf að fyrirtæki sem fá leyfi til fiskeldis í fjörðum landsins fullvinni afurðina hér á landi. Auðlindagjöld eiga að standa undir innviðauppbyggingu. 13. Auka þarf aðstoð við nemendur með sérþarfir, og fjölga kennurum. Við viljum gera kennslu að eftirsóknarverðu starfi með því að bæta starfsskilyrði kennara. Tryggja þarf jafnt aðgengi allra barna að íþróttum, listum og frístundastarfi. 14. Efla verður lestrargetu barna og ungmenna á öllum skólastigum. Þetta kallar á endurskoðun á kennsluaðferðum. Flokkur fólksins leggur áherslu á þróun og innleiðingu verkefnisins Kveikjum Neistann í fleiri grunnskóla enda hefur verkefnið sýnt fram á miklar framfarir þar sem það hefur verið nýtt í Grunnskóla Vestmannaeyja. 15. Ráðast verður í aðgerðir til að auka orkuöflun, styrkja flutningskerfi og bæta orkunýtingu þannig að stutt verði við verðmætasköpun um allt land. Tryggja verður forgang heimila og smærri fyrirtækja á raforku á sanngjörnu verði og að raforkuverð til heimila ráðist aldrei á uppboðsmarkaði. Enda voru forsendur uppbyggingar raforkukerfisins að almenningur nyti hennar með sanngjörnu verði. Þá þarf að niðurgreiða raforku til garðyrkjubænda enda eflir það innlenda grænmetisrækt og lækkar verð á grænmeti til neytenda m.a. til þess að tryggja fæðuöryggi. 16. Flokkur fólksins er friðarins flokkur og hvar sem hann kemur fram, hvort heldur á alþjóðavettvangi eða hér heima þá munum við tala fyrir friði. 17. Flokkur fólksins styður eindregið aðild íslands að Nató og mun hér eftir sem hingað til berjast fyrir því að við verðum ávallt þjóð á meðal þjóða.
Flokkur fólksins Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Mest lesið Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Innlent Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Við erum engir rasistar“ Innlent „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Innlent Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Fleiri fréttir Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Tíundi hver með ágætiseinkunn í MR Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Segir Viðskiptablaðið og Samstöðina fara rangt með mál um Ásthildi Lóu Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Tvenn mótmæli í Reykjavík og herþota á flugsýningu „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Missa fatamarkaðinn með flutningi Konukots í Ármúla „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Sjá meira