Á meðal þeirra sem hafa átt möguleika á frímiða í heiðurssæti á landsleikjum í körfubolta eru körfuboltamenn sem eiga það á ferilskránni að hafa spilað hundrað A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Aðeins fjórtán menn eru á hundrað landsleikja listanum, bæði fornfrægar kempur og menn sem áttu þátt í að koma Íslandi á sitt fyrsta stórmót fyrir tíu árum síðan.
Hundrað landsleikja mennirnir eru hins vegar ekki öruggir um sæti á landsleikjum, þrátt fyrir framlag sitt í gegnum tíðina, og þurfa líkt og aðrir að taka þátt í kapphlaupi um miða þegar eftirspurnin er mikil.
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, segir að rúmlega hundrað frímiðum hafi verið útdeilt vegna leiksins í gær. Þeir fari til að mynda til samstarfsaðila, gullmerkjahafa KKÍ og stjórnarmanna aðildarfélaga, auk 100 landsleikja manna. Séu þeir ekki á tánum enda miðarnir því einfaldlega í höndum annarra.
Sætin í heiðursstúkunni eru um það bil 5% af heildarfjölda sæta sem í boði voru í Laugardalshöllinni í gær, þar sem á milli 2.200-2.300 manns fylgdust með Íslandi eiga stórkostlegan leik og komast á EM í þriðja sinn í sögunni.
Þó að Vísir hafi heyrt óánægjuraddir þá kannaðist Hannes ekki við sérstaka óánægju með fyrirkomulag miðaúthlutunar. Hann segir nauðsynlegt að sem flestir miðar fari í sölu og bendir á að kostnaður við hvern landsleik hlaupi á milljónum króna.
Margir seinir að redda miða
„Það gildir bara fyrstur kemur, fyrstur fær. Það eru ansir margir með svona KKÍ-miða en við þurfum að takmarka hve margir geta nýtt sér það. Svo er auðvitað öllum frjálst að versla sér miða. Það er mjög dýrt að halda svona leik. Við náum ekki árangri nema með því að hafa pening og þetta er ein af okkar leiðum til að afla tekna,“ segir Hannes í samtali við Vísi.
Hann segir ljóst að auðveldlega hefði verið hægt að selja 2.000 miða til viðbótar á leikinn mikilvæga í gær og bíður líkt og margir aðrir langeygur eftir nýrri þjóðarhöll.
„Það var mjög mikil eftirspurn eftir miðum og auðvitað mjög „íslenskt“ hvernig síminn var að springa hjá mér og stjórnarmönnum um helgina því það halda allir að það sé bara hægt að redda miða. Ég kem ekkert fleirum í húsið þegar það er orðið uppselt. Menn verða bara að vera fljótir að ná sér í miða þegar þeir fara í sölu.“