Þjálfari Martins látinn fjúka Sindri Sverrisson skrifar 12. mars 2025 15:17 Martin Hermannsson er ekki lengur með Israel Gonzalez sem þjálfara. EPA/CLEMENS BILAN Forráðamenn þýska körfuboltafélagsins Alba Berlín hafa nú brugðið á það ráð að reka spænska þjálfarann Israel González eftir dapurt gengi á þessari leiktíð.
Félagið greindi frá þessari ákvörðun sinni í dag. Pedro Calles, sem verið hefur aðstoðarþjálfari, tekur nú við sem aðalþjálfari og hann stýrði æfingu í morgun. González varð aðalþjálfari Alba árið 2021, eftir að Martin Hermannsson fór til Valencia á Spáni, en hafði áður verið aðstoðarþjálfari liðsins. Martin sneri aftur til Berlínar fyrir rúmu ári og Alba lék til úrslita um þýska meistaratitilinn við Bayern München en tapaði einvíginu, eftir að Martin meiddist og missti af því. Í vetur hefur liðið hins vegar átt afar erfitt uppdráttar í þýsku deildinni og situr nú í 10. sæti af 17 liðum auk þess að vera í botnsæti EuroLeague. Á sunnudaginn tapaði Alba Berlín 101-90 í framlengdum leik gegn Ulm sem er í 2. sæti þýsku deildarinnar. Alba hafði þó unnið sex af síðustu átta leikjum sínum fram að því og komið sér á rétta leið í sæti í úrslitakeppninni en það dugði ekki fyrir González. Calles var ráðinn inn sem aðstoðarþjálfari í byrjun þessa árs, þegar vangaveltur höfðu verið uppi um framtíð González, og fær nú tækifæri til að leiða liðið til hæstu hæða á nýjan leik. Alba varð síðast þýskur meistari fyrir þremur árum.
Þýski körfuboltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira