Körfubolti

Kjartan snýr aftur á Álfta­nes: „Baldur bara bað mig um að koma“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kjartan Atli verður aftur mættur á hliðarlínuna hjá Álftnesingum í vetur.
Kjartan Atli verður aftur mættur á hliðarlínuna hjá Álftnesingum í vetur. vísir/Anton

Kjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en hann er kominn aftur til körfuboltaliðs Álftaness en nú í nýju hlutverki.

Kjartan Atli tók við Álftaness í 1. deildinni árið 2022 og fór beint upp með liðið. Á næstu tveimur árum komst Álftanes í undanúrslit í bikar og svo í undanúrslit í Íslandsmótinu. Það gaf á bátinn á síðasta tímabili og Kjartan steig frá borði rétt fyrir jól.

Hann var þó ekki lengi frá liðinu því Kjartan er kominn aftur á Nesið og að þessu sinni sem aðstoðarþjálfari Baldurs Ragnarssonar sem tók við liðinu í sumar.

„Baldur bara bað mig um að vera með sér. Ég var ekkert hissa er ég fékk símtalið,“ segir Kjartan Atli.

„Það verður oft vinskapur og félagsskapur milli þjálfara í deildinni. Það skilur enginn hvað þjálfarar ganga í gegnum nema aðrir þjálfarar. Ég á mikinn vinskap við fólkið í baklandinu og í kringum félagið. Leikmannahópurinn er skemmtilegur og þetta er bara skemmtilegt. Mér fannst þetta vera góð hugmynd.“

Ég vildi vera á hliðarlínunni

Kjartan hefur ekki mikla reynslu af því að vera aðstoðarþjálfari en það hentar honum ágætlega í dag.

„Ég var aðstoðarþjálfari hjá Hrafni Kristjánssyni með Stjörnuna árið 2014-15. Svo er ég með Körfuboltakvöld í átta ár áður en ég tek við Álftanesi. Ég vildi vera á hliðarlínunni. Er maður þjálfar í deildinni byggir maður upp ákveðna sérþekkingu. Ég vildi vera einhvers staðar til hliðar. Mín aðalvinna er hjá Sýn og svo er ég orðinn bæjarfulltrúi í Garðabæ. Ég hafði því hvorki tíma né þrek til að vera aðalþjálfari,“ segir Kjartan en er ekkert skrítið, eða erfitt, að fara úr því að vera aðalþjálfari liðs í að vera aðstoðarþjálfari þess?

„Það hefur ekki verið vesen. Ég er líka í algjöru aukahlutverki. Ég er til hliðar og hjálpa þegar þarf. Þetta er bara skemmtilegt.“

Kjartan ræðir þessa endurkomu sína á Álftanesið ítarlegar í spjallinu og hann ræðir einnig íslenska boltann þar sem hann er eðli málsins samkvæmt vel inn í öllum málum.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×