Körfubolti

Grinda­vík hóf tíma­bilið á stór­sigri

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Grindavíkur á síðasta tímabili
Frá leik Grindavíkur á síðasta tímabili Vísir/Anton Brink

Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. 

Sigur Grindavíkur í kvöld var í raun aldrei í hættu. Liðið tók snemma forystuna og leiddi með fjórum stigum eftir fyrsta leikhlutann. Jafnt og þétt bætti liðið við forystu sínu og fór að lokum með 39 stiga sigur af hólmi, 104-65. 

Abby Beeman var stigahæst í liði Grindavíkur með 29 stig, þá gaf hún einnig flestar stoðsendingar alls þrettán talsins. Hjá Ármenningum var það Edyta Ewa Falenzcyk sem var stigahæst með alls 22 stig. 

Frábær byrjun á tímabilinu hjá liði Grindavíkur sem mikið hefur verið í lagt fyrir tímabilið. Grindavík mætir næst Haukum á heimavelli á meðan að Ármann heimsækir Stjörnuna. 

Í Síkinu á Sauðárkróki tóku heimakonur í liði Tindastóls á móti Keflavík. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og sannast það best í hálfleikstölum leiksins, 40-40.

En strax í þriðja leikhluta. Þar byggðu heimakonur upp tíu stiga forskot sem þær létu aldrei af hendi. Aðeins átján stig frá Keflavík í seinni hálfleik sáu til þess að Tindastóll fór með fimmtán stiga sigur af hólmi, 73-58. 

Quinzia Jamecia Fulmore var stigahæst í liði Tindastóls með 18 stig. Þá tók hún 10 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Kolbrún María Ármannsdóttir var einnig öflug í endurkomu sinni í efstu deild hér á landi. Hún setti niður 13 stig, tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. 

Keflavík á alvöru prófraun fyrir höndum í næstu umferð þegar liðið heimsækir ríkjandi Íslandsmeistara Njarðvíkur í grannaslag. Tindastóll heimsækir nýliða Fjölnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×