Körfubolti

Segir Aþenu svikna um að­stöðu

Jakob Bjarnar skrifar
Brynjar Karl segir mikið áfall að Aþena fái nú ekki aðstöðu sem félaginu þó hafði verið lofað í kjallara Austurbergs í Breiðholti.
Brynjar Karl segir mikið áfall að Aþena fái nú ekki aðstöðu sem félaginu þó hafði verið lofað í kjallara Austurbergs í Breiðholti. vísir/Anton Brink

Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari með meiru segir íþróttafélagið Aþenu hafa verið svikið um íþróttaðastöðu sem því hafði verið lofað. Hann segir endalaus svik einkenna verk kerfisins gegn Aþenu sem þó er að vinna ómetanlegt ungmennastarf.

„Nú er ljóst að ákveðnir embættismenn Reykjavíkurborgar ætla enn á ný að hafna því að Aþena fái aðstöðu í kjallara íþróttahússins í Austurbergi, þrátt fyrir skýr loforð þar um,“ segir Brynjar í samtali við Vísi.

Með Eiríki Birni hvarf loforðið inn á þing

Brynjar segir fyrirliggjandi mikinn árangur Aþenu undanfarin tvö og hálft ár, hundruð barna og ungmenna hafi tekið þátt í starfseminni sem félagið hefur boðið fram og stefnir fjöldinn í 130 næsta haust.

„Þessi ákvörðun borgarinnar ógnar umfangsmiklu starfi sem hefur verið byggt upp með hundruðum klukkustunda af sjálfboðavinnu og tugmilljóna fjárfestingu einkaaðila. Mikilvægur stuðningsmaður okkar innan borgarkerfisins, Eiríkur Björn Björgvinsson, sem sýnt hefur heilindi í málefnum okkar, hefur nú látið af störfum hjá borginni eftir að hafa verið kjörinn á þing fyrir Viðreisn. Í kjölfarið virðist gamla andstaðan, sem áður reyndi að hindra starfsemi Aþenu, aftur komin á fullt.“

Brynjar segist hvorki skilja upp né niður í því hvað valdi?

Eiríkur Björn Björgvinsson var kjörinn á þing og með honum fór loforðið þangað.vísir/vilhelm

Brynjar segir umræddan sal í kjallaranum, sem sé lítill og dapur, verði notaðan fyrir hina ýmsu menntun ungmennanna í hverfinu. Aðstoð við heimanám, íslensku kennslu, heimspeki og hugarþjálfun.

„Verkefni Aþenu um að byrja með íþróttaakademíu í haust er í uppnámi. Fjárfest hefur verið í stólum, borðum, skjávörpum og mörgu fleiru en nýir yfirmenn skeyta engu um.“

Segir starfsemina hafa sparnað í för með sér

Að sögn Brynjars Karls hefur Aþena aldrei óskað eftir fjárhagslegum stuðningi frá Reykjavíkurborg og hefur ætíð leitað fjármögnunar hjá einkaaðilum. Þrátt fyrir það hafi verkefnið sannað gildi sitt og jákvæð áhrif fyrir samfélagið allt séu staðreynd.

„Til að gefa dæmi um mikilvægi starfsins átti fyrrverandi barnamálaráðherra dóttur í þjálfun hjá Aþenu og sá kom að máli við okkur fyrir stuttu og benti á að aðeins ein stúlka sem tók þátt í starfsemi okkar sparaði hinu opinbera um 50 milljónir króna á ári, þar sem hún hefði annars þurft á annarri opinberri þjónustu að halda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×