Dominic Solanke skaut Tottenham Hotspur í undanúrslit Evrópudeildar karla í fótbolta þegar hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 útisigri á Eintracht Frankfurt í kvöld.
Fyrri leik liðanna í Lundúnum lauk með 1-1 jafntefli og því ljóst að sigurvegari kvöldsins færi áfram. Á endanum var aðeins eitt mark skorað. Það gerði Solanke af vítapunktinum á 43. mínútu leiksins.
Þrátt fyrir að sitja í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar gæti Spurs enn komist í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en sigurvegari Evrópudeildarinnar fær sjálfkrafa sæti í Meistaradeildinni.
Spurs mætir Bodø/Glimt í undanúrslitum eftir að Noregsmeistararnir unnu frækinn sigur á Lazio eftir vítaspyrnukeppni.
Athletic Bilbao er komið í undanúrslit eftir 2-0 sigur á Rangers í kvöld. Oihan Sancet og Nico Williams með mörkin. Baskarnir mæta Manchester United í undanúrslitum.