Hvað er að frétta af humrinum? Jónas Páll Jónasson skrifar 29. apríl 2025 17:01 Alla tíð hafa fiskveiðar skipt okkur Íslendinga miklu. Umræðan um veiðar og sveiflur í aflabrögðum er oft á tíðum fjörug, en einnig erfið og stundum villandi. Spurt hefur verið hvernig standi á því að í nokkuð „fullkomnu fiskveiðistjórnunarkerfi“, megi finna dæmi um stofna sem skilgreindir eru undir varúðarmörkum, þ.e. að metin stofnstærð er kominn undir 10% af hámarks metinni stærð. En af hverju hrynja stofnar? Sveiflur í umhverfisskilyrðum hafsins geta og hafa í gegnum tíðina stýrt miklu varðandi ástand stofna. Með veiðum höfum við svo oft á tíðum ýkt sveiflurnar og auðvitað er hægt að ofveiða stofna. Leturhumarstofninn við Ísland eða humarinn okkar er gott dæmi um stofn sem hefur lent í niðursveiflu. Oft er ýmislegt látið flakka í umræðunni, sumt hljómar stundum trúverðugt, en hvað kom fyrir? Leturhumarinn Stofninn við Ísland er á norðurmörkum síns útbreiðslusvæðis og sá nyrsti sem nýttur er. Útbreiðslan er allt frá Kanaríeyjum, í Miðjarðarhafinu og stærstu stofnana er að finna í kringum Bretlandseyjar. Humarinn er nokkuð langlífur og heldur til á leirbotni þar sem hann grefur sér holur eða holukerfi. Skilyrðin við Ísland eru nokkuð sérstök. Kvendýrið hrygnir bara annað hvert ár á vorin, sökum þess hve langan tíma það tekur fyrir eggin að þroskast, en hún dvelur í holu sinni með eggin undir halafótum í 12-13 mánuði. Hér er einnig hlutfall kvendýra í veiðum mjög lágt, undir 10%, samanborið við um 40-50% í mörgum öðrum stofnum. Beinar humarveiðar við Ísland hefjast á 6. áratugnum, ná hámarki árið 1963 þegar veidd voru 6000 t og aftur áratug síðar í 4800 t. Aflabrögð versnuðu til muna eftir þessi hámörk og einnig nokkuð síðar með kólnandi skilyrðum í hafinu. Á þessum árum var jákvæð fylgni milli afkomu tegundarinnar og hitastigs í sjónum. Veiðum var stýrt með ráðgjöf frá því um 1980, veiðihlutfall var lækkað árið 1987 niður í 14% af viðmiðunarstofni. Það skilaði sér í hærra hlutfalli af stórum dýrum, en almennt verða humrarnir stærri við Ísland. Hlýnun og svo hrun Það hlýnaði hjá okkur í sjónum við Ísland (og á landi) upp úr 1997, og stórir árgangar af humri urðu til. Þessir árgangar skila sér í veiðarnar að fullu 8-10 árum síðar og árið 2008 ganga veiðarnar best, en ráðlagt var þá að veiða 2200 t. Næstu ár eru einnig mjög góð, meira er af stórum og fínum humri, en ráðgjöfin fer lækkandi frá 2200 t árið 2009 í 1150 t 2017. Árið 2019 er gripið til róttækra aðgerða og aðeins voru leyfðar mjög takmarkaðar veiðar næstu þrjú ár og loks var lagt til veiðibann árið 2022, en í ljósi stöðunnar þá var síst of snemma brugðist við. Nýliðunarskortur Árið 2013 kemur það fyrst fram í ástandsskýrslu Hafrannsóknastofnunar að aldrei hafi sést eins lítið af humri undir 40 mm, eða um 6 ára og yngri. Þessi nýliðunarskortur sem stafaði af lélegum árgöngum frá árinu 2005 og yngri heldur svo áfram allt þar til greina má nýliðunarpúls í leiðangri sem farin var sumarið 2024, þá frá árgöngum frá 2018 og yngri. Vísbending um þessa nýliðun mátti sjá í lirfusýnum árin 2018 og 2019. Staðreyndin er sú að það vantaði að mestu alla árganga í yfir 13 ár. En hvað veldur? Sjávarhiti við suðurströndina á 150 m dýpi náði hámarki í kringum 2005 í 8°C að vori, hafði þá hækkað um eina gráðu, en lækkar svo aftur um hálfa gráðu eftir 2015. Metið er svo að hækkun um eina gráðu stytti klaktíma eggja undir halafótum um allt að mánuð. Vorhámark þörungablóma við suðurströndina er nokkuð breytilegt, var í lok maí árin 1998 - 2000, en frá 2002 – 2016 var það að jafnaði eftir miðjan júní (2010 undantekning). Styrkur næringarefna, aðallega kísils lækkaði mjög frá 2000 allt til 2016, sem hefur áhrif á magn frumframleiðslu. Staðan var því sú að lirfurnar hafa klakist fyrr út og þar sem blóminn var seinna á ferðinni hafa þær líklegast ekki komist á legg. En var það bara hjá humrinum sem nýliðun var skert? Nei, hjá nytjategundum eins og skötusel, blálöngu, löngu, keilu, langlúru og stórkjöftu komu mismörg ár af mjög lélegri nýliðun á þessu tímabili. Á árabilinu frá 2005 til 2019 var til að mynda bara einn árgangur (2007) sandsílis sem eitthvað sást af við suðurströndina, en það olli svo viðkomubresti hjá lunda og fleiri sjófuglum. Jákvæðar breytingar hafa sést hjá öllum þessum stofnum undanfarin ár, nú síðast hjá stórkjöftu og skötusel. Þessar breytingar virðast tengjast breytingum í straumakerfum sem sjá má víðar í Atlantshafi. Þær neikvæðu breytingar sem sáust hér mátti t.d. merkja örfáum árum fyrr við Færeyjar og höfðu verulega neikvæð áhrif á fiskistofna og vistkerfið við Færeyjar. Aðrar orsakir? En hvað með makrílinn, var þetta ekki allt honum að kenna, eða skarki botntrolla, eða vitlausu stofnmati? Makríllinn fer að ganga hér við land á svipuðum tíma, en mest þó eftir 2010 undan suðurströndinni. Koma hans gæti spilað inní með auknu afráni á lirfum þótt ekki hafi verið vart við slíkt í þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið. Hefðbundnar veiðar með humarvörpu skýra ekki nýliðunarbrestinn, en umfang veiða var minna þau ár sem nýliðun skorti. Þær aðferðir sem beitt er við mat á þróun stofnstærðar styðja niðurstöður um skort á nýliðun. Gildir þá einu hvort beitt sé eldri aðferðum við matið eða með þeim aðferðum sem beitt hefur verið undanfarin ár, þar sem humarholur eru taldar með neðansjávarmyndavélum. Nýjasta talningin á humarholum árið 2023 greindi þó nokkra fjölgun á holum sem rekja má til sterkari yngri árganga humra. Ef nýliðun eykst áfram á komandi árum eru líkur til þess að hér verði humarveiðar stundaðar á ný. Höfundur er fiskifræðingur og sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson Skoðun Fær örmögnun fætur? Gunnar Önnu Svanbergsson Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson Skoðun Skoðun Skoðun Fær örmögnun fætur? Gunnar Önnu Svanbergsson skrifar Skoðun Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun