„Fátækasti forseti heims“ látinn Atli Ísleifsson skrifar 14. maí 2025 15:51 Jose „Pepe“ Mujica fyrir utan heimili sitt í útjaðri Montevideo árið 2014. AP Jose „Pepe“ Mujica, fyrrverandi forseti Úrúgvæ, er látinn, 89 ára að aldri. Hann gegndi embætti forseta landsins á árunum 2010 og 2015.
Mujica var mikill vinstrimaður, var þekktur fyrir hófsemdarlífsstíl sinn, gaf stóran hluta tekna sinna til góðgerðarmála og var fyrir vikið kallaður „fátækasti forseti heims“. Mujica hafði glímt við krabbamein en hann greindist á síðasta ári. Eftirlifandi eiginkona hans, Lucia Topolansky, tilkynnti í síðustu viku að Mujica fengi líknandi meðferð. Það var Yamandu Orsi, núverandi forseti Úrúgvæ, sem greindi frá andláti Mujica í gær. „Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum um andlát félaga Pepe Mujica. Forseti, aðgerðarsinni, leiðarljós og leiðtogi. Við munum sakna þín mikið, gamli vinur,“ sagði Orsi á samfélagsmiðlinum X. Mujica var mikilli gagnrýnandi neyslumenningar og var þekktur fyrir að klæðast reglulega sandölum á opinberum viðburðum. Þá vakti það athygli að hann neitaði að búa í forsetahöllinni í höfuðborginni Montevideo þegar hann tók við forsetaembættinu og bjó áfram á bóndabæ sínum í útjaðri höfuðborgarinnar. Í forsetatíð sinni löggilti Mujica bæði þungunarrof, kannabis og hjónabönd samkynhneigðra. Mujica stofnaði uppreisnarsveitina Tupamaros á sjöunda áratug síðustu aldar og sat á bak við lás og slá allt frá 1973 til 1985, á tímum einræðisstjórnarinnar í landinu. Eftir að hann slapp úr fangelsi hóf hann pólistískan feril sinn og stofnaði stjórnmálahreyfinguna MPP árið 1989. Hann var kjörinn á þing árð 1995 og tók sæti í efri deild úrúgvæska þingsins fimm árum síðar. Hann varð síðar landbúnaðarráðherra í fyrstu vinstristjórn landsins og varð svo kjörinn forseti 2010.
Andlát Úrúgvæ Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira