Innlent

Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Bílar af þessari gerð eru sjaldséðir hér á landi. 
Bílar af þessari gerð eru sjaldséðir hér á landi.  Facebook

Bleikum bíl af tegundinni Porsche var stolið úr Mosfellsdal í nótt. Eiganda þykir furðulegt að bíl með slíka sérstöðu skuli hafa verið stolið. Hann fékk upplýsingar um að þjófurinn hafi rúntað á bílnum um borgina í dag en bíllinn komst í leitirnar fyrr í kvöld. 

Fannar Þór Þórhallsson eigandi bílsins var spurður af vinnufélaga sínum í morgun hver væri að rúnta um á bílnum hans og svarað á þann veg að vinnufélaginn væri líklega að ruglast, bíllinn væri inni í skúr í Mosfellsdal. Vinnufélaginn hafi þá lýst bílnum í smáatriðum og þá runnið á Fannar tvær grímur. 

„Ég hringi í frænda minn sem er með mér í skúrnum og spyr hvort hann hafi tekið bílinn, en hann segir nei. Þá bruna ég upp eftir og sé að það eru spólför á malarplaninu fyrir utan og búið að skemma bílskúrshurðina,“ segir Fannar í samtali við fréttastofu. 

Við reiðstíg í Almannadal

Fannari þykir furðulegt að bíl með slíka sérstöðu hafi orðið fyrir vali þjófsins. Hann tilkynnti stuldinn til lögreglunnar, sem tók málið til rannsóknar að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar frá deginum í dag. Sjálfur lagðist hann í rannsóknarvinnu en hann  var staðráðinn í að komast á snoðir um hvar bíllinn væri niður kominn.

„Það er hálfur heimurinn að leita að honum,“ safði Fannar þegar fréttastofa náði tali af honum síðdegis. Hann segist hafa fengið upplýsingar um bílinn á Vesturlandsvegi og í Norðlingaholti í dag. 

„Það er eins og hann sé bara á rúntinum,“ sagði Fannar um þjófinn. 

Í þeim töluðu orðum sem blaðamaður ræddi við hann barst honum mynd af bílnum frá einum leitanda og gat ekki talað lengur. 

Uppfært 20:30: Myndin virðist hafa borið árangur en bíllinn er kominn í leitirnar að sögn Fannars. Hann segir í samtali við fréttastofu að bíllinn hafi fundist í Almannadal, þar sem honum hefði verið lagt utan reiðstígs og læst. 

„Ég á fullt af gömlum Porsce-um og átti einhvern nógu slitinn lykil sem ég gat tekið bílinn með.“

Fannar segir næsta mál á dagskrá að góma þjófinn eða þjófana, sem tók bæði bílinn og fleira í bílskúrnum, auk þess að hafa skemmt bílskúrshurðina. 

„En það er ánægjulegt að vera kominn með bílinn aftur, það er gott fyrsta skref.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×