Ómar Ingi hélt upp á framlengingu á samningi með stórleik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. maí 2025 19:54 Magnaður að venju. Ronny Hartmann/Getty Images Ómari Ingi Magnússon hefur framlengt samning sinn við þýska stórliðið Magdeburg til ársins 2028. Hann hélt upp á því með stórleik og ákvað Gísli Þorgeir Kristjánsson að gera slíkt hið sama. Þeir voru langt í frá einu Íslendingarnir sem létu að sér kveða í kvöld.
Gísli Þorgeir var markahæstur í sex marka sigri Magdeburgar á Burgdorf en liðin hófu leik í 4. og 5. sæti deildarinnar. Gísli Þorgeir skoraði hvorki meira né minna en átta mörk ásamt því að gefa tvær stoðsendingar. Fyrir leik greindi Magdeburg frá því að Ómar Ingi hefði framlengt samning sinn við félagið um þrjá ár. Hélt hann upp á það með því að koma með beinum hætti að tíu mörkum, skoraði sjö og lagði upp þrjú. View this post on Instagram A post shared by Dyn Handball (@dynhandball) Melsungen vann sex marka sigur á Wetzlar, 33-27. Elvar Örn Jónsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen ásamt því að gefa eina stoðsendingu. Línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson átti einnig góðan leik og skoraði fjögur mörk. Leipzig mátti þola fjögurra marka tap gegn HSV, lokatölur 25-29. Andri Már Rúnarsson var markahæstur í liði heimamanna með sex mörk ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar. Rúnar Sigtryggsson er sem fyrr þjálfari liðsins. Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað þegar Göppingen beið afhroð gegn Füchse Berlín á heimavelli, lokatölur 28-43. Staðan í deildinni er þannig að Melsungen er jafnt Füchse Berlín að stigum á toppi deildarinnar. Bæði lið með 50 stig að loknum 30 leikjum. Magdeburg er í 3. sæti með 45 stig en á tvo leiki til góða. Leipzig er í 12. sæti með 21 stig á meðan Göppingen er sæti neðar með stigi minna.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Ræddu brotthvarf Davíðs: „Þetta er eins og köld vatnsgusa“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Enski boltinn Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Íslenski boltinn Sjáðu boltahnupl Valdimars sem nánast tryggði Víkingum titilinn Íslenski boltinn Opinberað að Beard tók eigið líf Enski boltinn Davíð Smári hættur fyrir vestan Íslenski boltinn Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Formúla 1 „Verðum bara að halda áfram þangað til að þetta er búið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sjá meira