Kærir Costner fyrir „ofbeldisfulla óundirbúna“ nauðgunarsenu Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. maí 2025 08:25 LaBella hefur stefnt Costner og framleiðendum Horizon 2 vegna nauðgunarsenu se var ekki búið að undirbúa eða gera ráð fyrir í tökum. Hún fer fram á afsökunarbeiðni og skaðabætur. Getty Áhættuleikari hefur kært leikstjórann Kevin Costner og framleiðendur Horizon 2 fyrir að hafa þvingað hana til þátttöku í nauðgunarsenu sem var hvorki í handriti né á tökudagskrá og var skotin með stuttum fyrirvara án nándarþjálfa (e. intimacy coordinator).
Devyn LaBella, sem var áhættuleikari fyrir leikkonuna Ellu Hunt, lýsir því að hún hlotið varanlegan sálrænan skaða af atvikinu og fer hún fram á opinbera afsökunarbeiðni og óskilgreindar skaðabætur. Lögfræðingur Costner segir ásakanirnar ekki halda vatni og vera fjárkúgunartaktík. Samkvæmt stefnu LaBella, sem var birt fyrir dómstólum í Los Angeles-sýslu í Kaliforníu á þriðjudag, var senan tekin upp í maí 2023 í Utah en daginn áður hafði hún tekið upp sambærilega senu án vandkvæða, enda hafði verið búið að skipuleggja hana og undirbúa. Senan hafi brotið samskiptareglur í samningum SAG-AFTRA, verkalýðsfélags kvikmyndagerðarfólks, sem krefjast 48 klukkutíma fyrirvara og samþykkis fyrir öllum senum sem innihalda nekt eða leikið kynlíf. Senunni bætt við með stuttum fyrirvara Samkvæmt stefnunni bætti Costner auka nauðgunarsenu við með öðrum karlkyns leikara sem átti að klifra ofan á Hunt og þukla inn undir pils hennar. Viðbótarsenan var ekki dagskrá tökudagsins (e. call sheet) og ekki var gert ráð fyrir nándarþjálfa, sem vinnur með leikurum fyrir og eftir senur sem innihalda nekt eða kynlíf til að tryggja að þeir séu öruggir. „Hunt varð sýnilega misboðið og gekk af tökustaðnum og neitaði að leika í senunni,“ segir í stefnu LaBella. Devyn LaBella á rúmlega tveggja ára feril að baki í Hollywood.Getty Þá hafi verið kalla á LaBella til að hlaupa í skarðið. Hún hafi ekki verið undirbúin undir senuna og fengið upplýsingar um hana þegar tökur á henni voru þegar byrjaðar. Samkvæmt stefnunni þurfti að taka senuna upp mörgum sinnum. „Þennan dag var ég skilin eftir berskjölduð, óvernduð og innilega svikin af kerfi sem lofaði öryggi og fagmennsku,“ sagði LaBella í yfirlýsingu. „Það sem gerðist mölbraut traust mitt og breytti því varanlega hvernig ég hegða mér í þessum iðnaði.“ „Fjárkúgunartaktar“ rað-ásakara Costner hefur neitað ásökununum LaBella gegnum lögfræðing sinn, Marty Singer, sem sagði að Costner reyni „alltaf að tryggja að öllum líði vel í myndum hans og taki öryggi á tökustað mjög alvarlega.“ „Hins vegar er enginn fótur fyrir þessari kröfu og brýtur í bága við gjörðir hennar og staðreyndirnar,“ sagði Singer í yfirlýsingu fyrir hönd Costner. Kevin Costner vinnur nú að gerð fjögurra mynda vestra-epíkur. Sú fyrsta kom út í fyrra og önnur kemur út í ár.Getty „Fröken LaBella er rað-ásakari í skemmtanabransanum og hefur unnið með sama lögfræðingi að eldri kröfum. En þessir fjárkúgunartaktar munu ekki virka í þessu tilfelli,“ sagði hann jafnframt. Að sögn Singer var atriðið útskýrt fyrir LaBella og eftir æfingu hafi hún gefið þumalinn til áhættustjórans (e. stunt coordinator) sem hafi sýnt að hún var fús til þess að taka upp senuna. Um kvöldið hafi LaBella borðað með kollegum sínum, verið í „góðu skapi“ og „ekki kvartað yfir neinu til þeirra“. Samstarfsfélagar afsökuðu hegðun Costner Þessar lýsingar Singer stangast á við stefnuna þar sem hún segist hafa spurt kollega sína um kvöldið hvernig senunni var leyft að eiga sér stað. „Eftir að hún lýsti yfir hneykslan sinni og áhyggjum kenndu karlkyns gestirnir henni um að hafa ekki sagt neitt,“ segir í stefnunni. Hún hafi upplifað sig einangraða en þar sem tökum var ekki lokið hafi hún haldið áfram að vinna og reynt að vera fagmannlega. Í stefnunni er því lýst hvernig hún hafi næstu daga reglulega grátið yfir því sem gerðist. Það sem gerði andrúmsloftið líka óþægilegt var að samstarfsfólk hennar kom reglulega upp að henni til að biðjast afsökunar á hegðun Costner. Costner leikur sjálfur í Horizon-myndunum sem verða alls fjórar. LaBella var ekki ráðin aftur til að vinna að Horizon 3 og hefur ekki verið ráðin í nein af verkefnum áhættustjórans sem hún vann með í myndinni þó hún hafi unnið reglulega með honum áður. Horizon 2 er önnur myndin í fjögurra mynda vestraröð í leikstjórn Costner. Fyrsta myndin, sem kostaði 100 milljónir dala, halaði aðeins inn ellefu milljónum dala í bíó og var því hætt við að önnur myndin færi í bíó.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira