Fótbolti

Tveir látnir og fleiri hundruð hand­tekin í ó­eirðum eftir sigur PSG

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kveikt var í bílum.
Kveikt var í bílum. Vísir/Getty Images

Tveir eru látnir og vel yfir 500 hafa verið handteknir í óeirðum sem áttu sér stað í París eftir að París Saint-Germain sigraði Inter Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu á laugardagskvöld.

Það sem hefði átt að vera gleði og ánægja á götum Parísar eftir ótrúlegan 5-0 sigur PSG á Allianz-vellinum í Þýskalandi leystist fljótt upp í óeirðir og almenna skelfingu. 

Aldrei í sögunni hefur lið unnið úrslitaleikinn með slíkum yfirburðum. Leikurinn fór fram á Allianz-vellinum í Þýskalandi en um 50 þúsund manns komu saman á heimavelli PSG, Parc des Princes, til að horfa á leikinn.

Eftir að PSG hafði verið krýnt besta lið Evrópu fór safnaðist fjöldi fólks saman á götum Parísar til að fagna. Þau fagnaðarlæti fóru fljótt úr böndunum. Sky fréttastofan greinir frá því að tveir einstaklingar séu  látnir. 

Annar, 17 ára gamall piltur, var stunginn til bana og 23 ára gamall maður sem var keyrandi um á vespu. Ekki kemur fram hvað gerðist í síðara tilvikinu.

Jafnframt greinir Sky frá því að 560 manns hafi verið handtekin, að lögreglumaður sé í dái, að 192 hafi slasast í óeirðunum og 692 íkveikjur hafi átt sér stað. Þar af 264 sem innihéldu íkveikju í ökutæki.

Mikil gleði ríkti hjá flestum þeim sem fögnuðu.Vísir/Getty Images

Alls voru 5400 lögreglumenn á vakt í borginni þegar fagnaðarlætin, og óeirðirnar í kjölfarið, brutust út. Lenti þeim saman við óeirðarseggina víðsvegar um borgina. Óeirðarlögregla borgarinnar þurfti til að mynda að nota vatnsbyssu til að koma í veg fyrir að hópur fólks kæmist að Sigurboganum. Þá var táragasi beitt.

„Sannir stuðningsmenn PSG eru að njóta þessa ótrúlega leiks. Á sama tíma hafa villimenn nýtt tækifærið til að fremja glæpi og ögra lögreglunni,“ sagði Bruno Retailleau, innanríkisráðherra Frakklands, um atvik næturinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Fékk draum sinn uppfylltan og heiðraði minningu látinnar dóttur sinnar

Xana Enrique var aðeins níu ára gömul þegar hún lést eftir baráttu við krabbamein. Luis Enrique, föður hennar, dreymdi um að heiðra minningu hennar og það fékk hann eftir ótrúlegan 5-0 sigur lærisveina sinna í París Saint-Germain á Inter Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

„Draumar rætast“

Khvicha Kvaratskhelia, einn af markaskorurum París Saint-Germain í ótrúlegum 5-0 sigri á Inter Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu, var heldur stuttorður er hann ræddi við fjölmiðla eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×