Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 7. júní 2025 15:50 FH-konur skoruðu fjögur mörk í Víkinni í dag. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Víkingur Reykjavík tók á móti FH á Víkingsvelli í 8. umferð Bestu deildar kvenna í dag. FH sigraði leikinn 1-4 og er því með 19 stig eftir átta umferðir og halda FH stelpurnar áfram að berjast í toppbaráttunni. Fyrstu 20 mínútur leiksins einkenndust af jafnri baráttu þar sem bæði lið sóttu af krafti og reyndu að skapa sér færi en engin afgerandi atvik komu upp. Það var svo á 23. mínútu sem gestirnir brutu ísinn. FH fékk hornspyrnu og fyrsta mark leiksins kom. Elísa Lana Sigurjónsdóttir átti góða sendingu inn á nærstöngina þar sem Deja Jaylyn Sandoval reis manna hæst og stangaði boltanum laglega í netið. Stuttu síðar tvöfölduðu gestirnir forystunna með lagregri skyndisókn. Maya Lauren Hansen fékk boltann á miðjunni og lagði boltann út til hægri á Thelmu Karen Pálmadóttur sem tók sprettinn upp kantinn og skaut boltanum stöngina inn. Gestirnir fóru því tveimur mörkum yfir inn eftir fyrri hálfleik. Víkingur mættu sterkari út í seinni hálfleik og áttu góða spilkafla og ágætar sóknir en skorti beittan endapunkt til að brjóta varnarlínu FH. Á 79. mínútu skoruðu FH-ingar aftur úr föstu leikatriði og bættu við þriðja markinu. Hildigunnur Ýr Sigurjónsdóttir átti frábæran bolta inn í teig og Elísa Lana Sigurjónsdóttir kláraði færið. Í kjölfarið gerði Víkingur tvöfalda breytingu þar sem Júlía Rut Thasapong og Arna Ísold Stefánsdóttir komu inn á. Fimm mínútum síðar voru varamennirnir á ferð og lagði Júlía Rut Thasapong boltann fyrir á Örnu Ísold Stefánsdóttir í teig FH-inga og skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deild kvenna, aðeins 15 ára gömul. Smá von fyrir Víkinga sem héldu áfram að sækja en FH-ingar gerðu út um leikinn í uppbótartíma með glæsilegri sókn þar sem Maya Lauren Hansen gaf hælsendingu inná Thelmu Karen Pálmadóttir sem kláraði laglega í markið ein á móti markverði. Atvik leiksins Fyrsta mark leiksins breytti leiknum aðeins þar sem hann hafði byrjað heldur rólega og lítið um góð færi. Stjörnur og skúrkar Thelma Karen Pálmadóttir var frábær í dag með tvö mörk. Elísa Lana Sigurjónsdóttir með mark og stoðsendingu og Maya Lauren Hansen með tvær stoðsendingar. Arna Ísold Stefánsdóttir átti góða innkomu fyrir Víkinga og skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deild kvenna en hún er einungis 15 ára gömul. Stemning og umgjörð Mjög góð stemning hérna á Víkingsvelli og mikil hamingja. Það var gott veður og fín mæting í stúkuna. Dómarar Ásmundur Þór Sveinsson, Guðmundur Ingi Bjarnason og Jón Reynir Reynisson dæmdu leikinn með prýði í dag. Það voru engin vafamál eða sérstök atvik í leiknum. Engin spjöld og ekkert vesen. Toppeinkun á þetta tríó hér í dag. Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík FH