Knicks horfir til Dallas í leit að næsta þjálfara Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. júní 2025 22:46 Gæti Kidd haft áhuga á að skipta Dallas út fyrir New York? EPA-EFE/ERIK S. LESSER Jason Kidd er nýjasta nafnið á blaði hjá New York Knicks sem leitar nú að nýjum aðalþjálfara eftir að Tom Thibodeau var látinn taka poka sinn eftir að liðið féll úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.
Knicks komst alla leið í úrslit í austurhluta NBA-deildarinnar í ár en mátti þar þola tap gegn Indiana Pacers líkt og í úrslitakeppninni á síðasta ári. Í kjölfarið ákvað Knicks að láta hinn 67 ára gamla Tom fara. Hann hafði stýrt liðinu frá árinu 2020. Þó svo að síðustu tvö ár hafi verið virkilega góð eftir mögur ár þar á undan var talið að Tom væri kominn á endastöð og nú þarf Knicks að finna þjálfara sem getur komið liðinu enn lengra. The Athletic greinir frá því að Knicks hafi trú á að Kidd, sem endaði leikmannaferil sinn með liðinu, sé sá maður. Hann hefur verið þjálfari Dallas Mavericks frá 2021 og hefur gengið í gegnum ýmislegt þar á bæ. Á yfirstandandi tímabili var Luka Dončić óvænt skipt til Los Angeles Lakers og gufuðu draumar Dallas um meistaratitil upp fljótlega eftir það vegna ýmissa ástæðna sem nær ómögulegt er að kenna þjálfara liðsins um. Gríðarleg meiðsli herjuðu á liðið og náði Kidd aldrei að stilla upp sínu besta liði eftir að Dončić yfirgaf félagið. Kidd hefur þjálfað í NBA-deildinni í meira en áratug. Hann hóf ferilinn hjá Brooklyn Nets, þaðan lá leiðin til Milwaukee Bucks og svo var hann aðstoðarþjálfari Lakers frá 2019-21 áður en hann tók við Dallas. Þar sem Kidd er samningsbundinn Mavericks þarf Knicks að biðja um leyfi til að ræða við þjálfarann. The Athletic telur hins vegar ólíklegt að Dallas samþykki þá beiðni.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira