Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu segir Neytendastofu bæði hafa fengið margar ábendingar frá neytendum og hagsmunasamtökum vegna gjaldskyldra bílastæða. Þórunn Anna ræddi málið í Reykjavík síðdegis í gær.
Hún segir Neytendastofu í kjölfar þess að fá ábendingar hafa gert gagngera skoðun á fyrirtækjum á markaði. Þau séu nú búin að ljúka skoðun á fjórum fyrirtækjum. Alls hafi ellefu mál verið tekin til skoðunar. Einhver hafi verið felld niður en enn séu einhver opin.
„Það er heilmikil vinna enn fram undan,“ segir Þórunn Anna.
Hún segir að í flestum tilfellum hafi fyrirtækin verið að leggja á gjöld sem neytandinn vissi ekki um eins og þjónustugjöld í appi eða kostnað við að fá kröfu í heimabanka. Það hafi líka verið ruglingur á því hverjum nákvæmlega átti að greiða, því stæðin voru ekki merkt og svo hafi stundum ekki verið skýrt að greiðsla hafi ekki verið sjálfvirk nema fólk væri skráð í appið.
Þórunn Anna segir misjafnt eftir fyrirtækjum fyrir hvað þau voru sektuð og hversu há sektin var. Fyrirtækin sem um ræðir eru Isavia, vegna gjaldheimtu við Reykjavíkurflugvöll, Parka lausnir ehf., Easypark og Green parking ehf. Sektirnar voru á bilinu 200 þúsund krónur til einnar milljónar króna, sem Parka ber að greiða.
Neytendastofa muni fylgja málinu eftir
Þórunn Anna segir fyrirtækin nú þurfa að bæta úr sinni upplýsingagjöf. Það sé ekkert í lögum sem banni sjálfa gjaldtökuna en gjaldtaka þurfi að vera skýr þannig neytandi viti af henni. Önnur fyrirtæki geti einnig tekið mið af því.
Hún segir Neytendastofu fylgja þessu eftir og sjá til þess að bætt hafi verið úr upplýsingagjöf. Vilji fólk gera athugasemdir við gjaldtökuna verði það að leita til Kærunefndar vöru og -þjónustukaupa.
Þórunn Anna segir mjög algengt að neytendur kvarti og það berist enn reglulega kvartanir til Neytendastofu vegna málsins.
„Við vonumst til þess að þetta verði til þess að háttsemin verði breytt og merkingarnar skýrar. Það er alveg augljóst að þetta er ekki nægilega skýrt.“